Velti fyrir sér hvernig höfuðpaurarnir gátu leikið lausum hala Sylvía Hall skrifar 22. febrúar 2021 19:48 Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir nauðsynlegt að tryggja að lögregla hafi þær heimildir sem þurfa til að upplýsa mál. Vísir/Vilhelm Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi lögreglumaður, útilokar ekki að það vanti frumkvæði eða vilja hjá lögreglu til þess að hefja rannsókn þegar vísbendingar eru um ólöglega háttsemi. Löggjafinn þurfi þó að tryggja að lögregla hafi þær heimildir sem til þurfa.
Árni Þór Sigmundsson, fyrrverandi aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu gagnrýndi þá sem hafa farið fyrir fíkniefnarannsóknum hér á landi, en Vísir greindi frá því í dag að lögregla hefði í mörg ár sýnt ábendingum um tiltekinn einstakling lítinn áhuga, þrátt fyrir vísbendingar um gífurlegan auð án skýringa. „Um áratuga skeið hefur tiltekinn einstaklingur verið orðaður við ýmislegt, æði misjafnt og hann hefur auðgast gífurlega án þess að sýna skýranlega innkomu og það fyrir allra augum,“ segir Árni Þór. Vilhjálmur ræddi þessi mál í Reykjavík síðdegis í dag. Hann segist hafa spurt sjálfan sig sömu spurninga á sínum tíma í lögreglunni. „Hvaðan koma peningarnir og hvernig geta höfuðpaurarnir oft leikið lausum hala og lifað svona hátt? Þarna er náttúrulega nærtækast að elta peningana – hvar er peningaþvættið og annað slíkt?“ Hann segir nauðsynlegt að lögreglan hafi þær heimildir sem þurfa í slíkum rannsóknum og bætir við að nú þegar sé hafin vinna við það að auka samstarf milli stofnana. Stórt skref hafi verið stigið með stofnun embættis héraðssaksóknara. „Svo liggur fyrir þinginu núna breyting um að Embætti skattrannsóknarstjóra gangi inn í Ríkisskattstjóra að hluta til og eitthvað frekar til lögreglunnar. Þá er kannski verið að stytta þessar boðleiðir og auka yfirsýn.“ „Þurfum að vera á tánum“ Aðspurður hvers vegna hann telji lögreglu ekki hafa sinnt frumkvæðisskyldu sinni segir Vilhjálmur ekki útiloka að það vanti viljann til að ganga inn í slík mál. Til að mynda hafi verið rætt um í tengslum við núverandi rannsókn á morðinu í Rauðagerði að það gæti vantað vissar heimildir. „Það eru líka fleiri á þessari skoðun eins og Árni Þór, enda var málið sent til héraðssaksóknara til rannsóknar út af þessu. Út frá því er þessi leki kominn, einhverjum þótti þetta óeðlilegt og því var gerð rannsókn á því innan lögreglunnar hvað hefði farið úrskeiðis. Hvort það væri einhver ástæða fyrir því að frumkvæðið væri ekki meira en þetta.“ Hann segir mikilvægt að vera á tánum í þessum málum, enda sé ákall frá samfélaginu að koma í veg fyrir hneykslismál á borð við það sem Árni vísar til. Sjálfur trúi hann því að Ísland sé á þeirri vegferð, en þó sé alltaf hægt að gera betur. „Ef það er eitthvað óeðlilegt innan lögreglunnar og einhverjir eru að fá einhverja sérstaka meðferð eiga að vera komnir skýrari ferlar til að fylgjast með því. Það er erfiðara ef þetta er eitthvað skipulagt innan lögreglunnar. Við þurfum að auka samstarfið með skattrannsóknum og fjármunabrotum og skipulagðri glæpastarfsemi hjá lögreglu svo það sé hægt að tengja þarna á milli.“
Lögreglan Lögreglumál Reykjavík síðdegis Morð í Rauðagerði Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Fleiri fréttir Baldurs og Felix-fáni falur Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Sjá meira