Fjöldi særður eftir átök við al-Aqsa moskuna í Jerúsalem Kjartan Kjartansson skrifar 8. maí 2021 08:02 Ísraelskir lögreglumenn handtaka palestínskan mótmælanda á Musterishæðinni í Jerúsalem í nótt. Mótmælin beindust að fyrirhugðum útburði á palestínskum fjölskyldum í hverfi sem ísraelskir landtökumenn hafa sölsað undir sig. Vísir/EPA Ísraelskir lögreglumenn skutu gúmmíkúlum og blossasprengjum að Palestínumönnum sem köstuðu steinum og flöskum í hörðum átökum við al-Aqsa-moskuna á Musterishæðinni í Jerúsalem í gærkvöldi. Að minnsta kosti 163 Palestínumenn eru sárir og sex ísraelskir lögreglumenn.
Rauði hálfmáninn opnaði bráðabirgðaspítala til að hlúa að þeim særðu í átökunum sem brutust út eftir að þúsundir manna söfnuðust saman við moskuna á síðasta föstudegi ramadan, föstumánaðar múslima. Ísraelska lögreglan segist hafa neyðst til þess að beita valdi til að koma á reglu vegna uppþota þúsunda manna eftir kvöldbænir, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Vaxandi spenna er vegna áforma um að reka Palestínumenn frá Shaikh Jarrah-hverfi Austur-Jerúsalem sem ísraelskir landtökumenn hafa sölsað undir sig. Sameinuðu þjóðirnar hafa hvatt Ísraelsmenn til þess að láta það vera að reka Palestínumennina burt og að sýna „hámarkshófsemi“ í valdbeitingu gegn mótmælendum. Hæstiréttur Ísraels tekur útburð palestínsku fjölskyldnanna fyrir á mánudaginn. Bæði Ísraelar og Palestínumenn gera tilkall til Austur-Jerúsalem. Palestínumenn vilja að borgarhlutinn verði höfuðborg sjálfstæðs ríkis þeirra í framtíðinni en Ísraelar hafa hersetið svæðið frá 1967.
Ísrael Palestína Sameinuðu þjóðirnar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira