Reynir á þolmörkin á skipakomudögum

Unnið hefur verið skipulega að því að markaðssetja Grundarfjörð sem …
Unnið hefur verið skipulega að því að markaðssetja Grundarfjörð sem viðkomustað erlendra skemmtiferðaskipa með þeim árangri að þeim hefur fjölgað á hverju ári. mbl.is/Gunnar Kristjánsson

Þótt farþegar skemmtiferðaskipa séu aðeins brot af þeim mikla fjölda ferðafólks sem sækir Snæfellsnes heim á hverju ári, reyna skipadagar þegar stór skemmtiferðaskip eru í höfn í Grundarfirði, á þolmörk vinsælla ferðamannastaða svæðisins. Unnið er að greiningu á þolmörkum og gæðum við móttöku ferðafólks í verkefni sem sveitarfélög, Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull og fleiri, vinna saman að.

Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri í Grundarfirði, segir að áætla megi að allt að 45 þúsund manns komi til Grundarfjarðar með skemmtiferðaskipum sem þar hafa viðdvöl í sumar. Til viðbótar hafi minni skip viðkomu í Stykkishólmi og einhver skip sendi farþega í land á Arnarstapa. Ferðafólkið fær þjónustu í Grundarfirði en margir kaupa sér ferðir á vinsælustu ferðamannastaði Snæfellsness.

Björg segir áætlað að allt að milljón ferðamenn komi á Snæfellsnes á ári. Farþegar skemmtiferðaskipanna eru því lítið hlutfall af heildinni, en Björg bendir á að álagið geti orðið mikið á helstu áningarstöðum á komudögum skemmtiferðaskipanna.

Nán­ar er fjallað um málið í Morg­un­blaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert