Erlent

Á­hersla á „grænt hag­kerfi“ í stjórnar­sátt­mála nýrrar Scholz-stjórnar

Atli Ísleifsson skrifar
Græningjarnir Annalena Baerbock og Robert Habeck, Jafnaðarmaðurinn Olaf Scholz og Frjálslyndi demókratarnir Christian Lindner og Volker Wissing.
Græningjarnir Annalena Baerbock og Robert Habeck, Jafnaðarmaðurinn Olaf Scholz og Frjálslyndi demókratarnir Christian Lindner og Volker Wissing. AP

Þýski Jafnaðarmaðurinn Olaf Scholz mun gegna embætti kanslara í nýrri ríkisstjórn Jafnaðarmanna, Græningja og Frjálslyndra demókrata í Þýskalandi. Stjórnarsáttmáli var kynntur til sögunnar í dag eftir um tveggja mánaða viðræður – sáttmáli sem verður nú lagður fyrir flokksstofnanir til samþykktar.

Þetta verður í fyrsta sinn í sextán ár sem Jafnaðarmaður mun leiða ríkisstjórn Þýskalands, en Kristilegi demókratinn Angela Merkel hefur stýrt landinu frá árinu 2005, eða frá því að hún tók við kanslaraembættinu af Gerhard Schröder.

Flokkarnir leggja í stjórnarsáttmálanum áherslu á umbreytingu í „grænt hagkerfi“ þar sem segir að meðal annars verði stefnt að því að stöðva kolanotkun í áföngum fram til ársins 2030, átta árum fyrr en áætlað var. 

Þá sé stefnt að því að leggja tvö prósent af lögsögu landsins undir vindorku, auk þess að auka nýtingu vatnsafls.

Í sáttmálanum er einnig gert ráð fyrir lögleiðingu kannabisneyslu.

Efnahagskerfi Þýskalands er það stærsta í Evrópu svo ákvarðanir þýskra stjórnvalda hafa mikil áhrif á helstu nágrannaríkin og sömuleiðis innan Evrópusambandsins.


Tengdar fréttir

Hafa sam­mælst um að lög­leiða neyslu kanna­bis

Þýsku stjórnmálaflokkarnir þrír sem eiga nú í viðræðum um myndun nýrrar ríkisstjórnar hafa sammælst um að lögleiða almenna kannabisneyslu í landinu. Hingað til hefur neysla kannabis í lækningaskyni einungis verið heimil

Hver er þessi Olaf Scholz?

Þjóðverjar munu brátt sjá nýjan mann í embætti kanslara í stað Angelu Merkel sem stýrt hefur landinu frá árinu 2005. Eftir kosningar á sunnudag má telja líklegast að það verði Olaf Scholz fjármálaráðherra sem var kanslaraefni Jafnaðarmannaflokksins (SPD) í nýafstöðnum kosningum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×