Sara vitnaði í Kobe Bryant Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. september 2020 10:01 Sara Sigmundsdóttir með Mola sínum en til hægri er Kobe Bryant. Samsett/Instagram/Getty
Þriðja árið í röð voru heimsleikarnir mikil vonbrigði fyrir íslensku CrossFit konuna Sara Sigmundsdóttir. Sara gerði upp helgina með því að vitna í Kobe heitinn Bryant. Fyrir heimsleikana um helgina þá bjuggust flestir CrossFit sérfræðingar við því að sjá íslensku CrossFit konuna Söru Sigmundsdóttur ná einu af efstu fimm sætunum. Sara er búin að eiga frábært tímabil og var sú sem flestir töldu að ætti mestu möguleikana á að ógna Tiu-Clair Toomey á toppnum. Niðurstaðan var hins vegar allt önnur. Sara Sigmundsdóttir endaði bara í 21. sæti á heimsleikunum og var sextán sætum og 170 stigum frá því að komast í fimm manna ofurúrslitin. Hún var í hópi neðstu keppenda frá fyrstu grein og það breyttist ekki eftir það. Sara Sigmundsdóttir gerði upp helgina á Instagram síðu sinni með mynd af sér með Mola sínum og með því að vitna í bandaríska körfuboltagoðsögnina Kobe Bryant eins og sjá má hér fyrir neðan. View this post on Instagram There is always going to be adversity. There are always going to be challenges. And those are all opportunites to rise above. - Kobe Bryant Thank you everyone who made this weekend happen, and thank you all for the love and support A post shared by Sara Sigmundsdo ttir (@sarasigmunds) on Sep 22, 2020 at 2:36pm PDT „Það mun alltaf vera mótbyr. Það verða alltaf áskoranir. Það gefur manni um leið tækifæri til að ná enn hærra,“ vitnaði Sara í Kobe Bryant. „Þakkir til allra sem sáu til þess að þessi helgi gat farið fram. Þakkir líka fyrir alla ástina og allan stuðninginn,“ skrifaði Sara. Sara Sigmundsdóttir mun vonandi halda áfram að vinna í sínum málum. Hún hefur átt hvert frábæra tímabilið á fætur öðru en heimsleikarnir ætla að reynast henni afar erfiðir. Sara varð að hætta keppni á heimsleikunum 2019, náði ekki niðurskurðinum í fyrra og endar nú svona langt á eftir þeim bestu.
CrossFit Mest lesið Fékk tvö gul spjöld en slapp samt við rautt spjald Fótbolti Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Körfubolti Vikan varð enn verri fyrir Barcelona: Refsað fyrir nasistakveðjur og fordóma Fótbolti Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Enski boltinn Hvað viltu meira? „Góð aðventa með handbolta og skíðum“ Handbolti „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Fótbolti Bað Caitlin Clark afsökunar á karlrembunni í sér Körfubolti Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ Fótbolti Dagskráin í dag: Sófadagur í sólarhring Sport Ramos rekinn úr húsi fyrir að sparka í klof Bookers Körfubolti Fleiri fréttir Fékk ellefu leikja bann fyrir geislann úr heiðursstúkunni Bað Caitlin Clark afsökunar á karlrembunni í sér Fékk tvö gul spjöld en slapp samt við rautt spjald Hvað viltu meira? „Góð aðventa með handbolta og skíðum“ Vikan varð enn verri fyrir Barcelona: Refsað fyrir nasistakveðjur og fordóma Dagskráin í dag: Sófadagur í sólarhring Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ „Hlakka rosalega til að sjá troðfullt hús á mánudaginn“ Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Ósáttur með dómara leiksins: „Eins og að spila gegn fjórtán mönnum“ Rómverjar svífa um á bleiku skýi De Rossi Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Þór Þ. 107-110 | Þórsarar sigri frá undanúrslitum Liverpool úr leik þrátt fyrir sigur á Ítalíu Leverkusen neitar að tapa Uppgjörið: Valur - Höttur 94-74 | Valsmenn taka forystuna í einvíginu Hergeir til Hauka Ramos rekinn úr húsi fyrir að sparka í klof Bookers Hákon Arnar lagði upp þegar Lille féll úr leik eftir vítaspyrnukeppni Arnar Freyr öflugur í góðum sigri Melsungen Sveinn Andri samdi við Stjörnuna Sjötta umferð GR Verk deildarinnar í kvöld: Þórsarar í efsta sæti Markadrottningin mun ná þrettán árum hjá franska félaginu Ísland í erfiðum riðli á EM Jóhanna Margrét skiptir um lið innan Svíþjóðar Curry reyndi að fá Clark til Under Armour en Nike hafði betur Hjartað var ekki vandamálið þegar Roma maðurinn hneig niður Slakt gengi City, Arsenal og Liverpool í Evrópu slæmar fréttir fyrir United Sjáðu ótrúlega vítakeppni gærkvöldsins: „Vá hvað þetta var skrýtið“ Sjá meira