Mögnuð tilfinning að taka flugprófið yfir eldgosi Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 17. apríl 2021 07:31 Birta Óskarsdóttir fékk draumaveður þegar hún flaug yfir eldgosið á Reykjanesskaga í lokaprófinu sínu. „Ég fékk fyrst áhuga á flugi þegar ég var í níunda eða tíunda bekk þegar það kom flugmaður í grunnskólann minn og hélt kynningu um flug,“ segir Birta Óskarsdóttir, nýútskrifaður atvinnuflugmaður.
Birta er 21 árs gömul og fór á dögunum í ógleymanlega flugferð yfir eldgosið í Geldingardal. Hún sat þar sjálf í flugstjórnarsætinu og þreytti færnipróf til atvinnuflugmannsskírteinis hjá prófdómara. „Prófdómarinn minn stakk upp á því að hafa það part af prófinu þar sem að ég hafði ekki séð eldgosið áður. Tilfinningin var alveg mögnuð,“ segir Birta í samtali við Vísi. Birta Óskarsdóttir sátt að loknu vel heppnuðu prófi. Birta hafði á þessum tímapunkti lokið öllum bóklegum prófum og verklegu þjálfuninni til atvinnuflugmannsréttinda og átti því einungis færniprófið eftir til að fá skírteinið loksins í hendurnar. Hér fyrir neðan má sjá stutt myndskeið úr flugvélinni. Klippa: Flugpróf yfir eldgosi Stressandi en spennandi Í frétt á vef skólans kemur fram að þetta hafi síður en svo verið auðvelt verkefni, enda mikil eftirspurn eftir því að fljúga yfir gosstöðvarnar. Einungis átta flugvélar eru leyfðar inn í flugsvæðið á sama tíma og því þurfa flugmennirnir að vera einstaklega vel á varðbergi og halda góðum samskiptum í talstöðinni. Svo þarf auðvitað líka að fylgjast með öðrum flugvélum í kring og fljúga flugvélinni af mikilli nákvæmni. Birta segir að allt þetta hafi gengið einstaklega vel. Birta við lendingu eftir að fljúga yfir gosið. „Ég flaug flugvél í fyrst skiptið þegar ég byrjaði í skólanum árið 2018. Það var smá stressandi en spennandi tilfinning,“ segir Birta. Hún hafði lengi látið sig dreyma um að fá að fljúga flugvél, enda ákvað hún að stefna á einkaflugmanninn strax í grunnskóla. „Það sem heillaði var að fá að fljúga flugvél og ferðast um allan heim, síðan skemmir útsýnið ekki fyrir.“ Birta segir að allt við flugnámið hafi verið skemmtilegt. Lítið að tækifærum í Covid Birta fór í samtvinnaða atvinnuflugnámið í Flugakademíunni í Keili og stóðst hún færniprófið sitt með glæsibrag. „Þetta var mjög skemmtilegt og krefjandi nám þar sem að við lærum svo mikið á stuttum tíma.“ Það skemmtilegasta fannst henni samt að fá að fljúga flugvélum. „Næst hjá mér er MCC námskeið (multi crew co-operation) og síðan ætla ég að skrá mig í flugkennarann,“ segir Birta um framhaldið. Hún ætlar að halda áfram í námi og samhliða því að vinna og fljúga eins mikið og hún getur. „Heimsfaraldurinn hefur haft veruleg áhrif á námið mitt og seinkað því um ár. Hann hefur einnig haft þau áhrif á að það verður erfitt fyrir mig og aðra flugmenn að fá vinnu.“
Fréttir af flugi Eldgos og jarðhræringar Eldgos í Fagradalsfjalli Skóla - og menntamál Mest lesið Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Lífið Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Lífið Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Tíska og hönnun Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Lífið Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Lífið Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Tróð upp í Norræna partýinu Lífið „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Lífið Fleiri fréttir Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Tróð upp í Norræna partýinu Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt Bakaríið í beinni Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Bakaríið í beinni Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Una Torfadóttir með sína útgáfu af Bubbalagi frá 1998 Hyggjast renna fimmtíu íslenskum lögum inn í karaokívélarnar Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“ Minningar um líf sem er að hverfa Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Tíu ár og aukin meðvitund í bransanum Hvetur fólk til þess að leika sér Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Sjá meira