Innlent

Eig­anda stór­skemmds bíls létt að enginn hafi slasast í sprengingunni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Eins og sjá má er bíllinn verulega tjónaður. Halldór Snær segir fyrir öllu að enginn hafi slasast. Alltaf sé hægt að skipta um bíl.
Eins og sjá má er bíllinn verulega tjónaður. Halldór Snær segir fyrir öllu að enginn hafi slasast. Alltaf sé hægt að skipta um bíl. Vísir/Vilhelm

Telja má kraftaverk að enginn hafi slasast þegar öflug sprenging varð á byggingasvæði í Garðabæ á fimmta tímanum í dag. Halldór Snær Kristjánsson, eigandi bíls sem skemmdist mikið í sprengingunni, segir fyrir mestu að enginn hafi slasast.

Það var um klukkan 16:45 í dag að mikill hvellur varð í Ásahverfinu í Garðabæ svo heyrðist langar leiðir. Halldór Snær var á heimili sínu í næsta nágrenni þegar sprengingin varð.

„Ég var heima, í símanum, þegar ég heyrði mikla sprengingu og öskur,“ segir Halldór Snær.

„Svo voru sjúkrabílar, slökkviliðsbílar og lögreglubílar mættir um leið. Ég skildi ekkert hvað hafði gerst,“ segir Halldór.

Hann var ekki sá eini sem brá í brún við sprenginguna því ábendingar bárust fréttastofu úr öllum áttum vegna hvellsins. Í framhaldinu kviknaði eldur í þaki fjölbýlishúss sem er í byggingu. 

Fljótlega bar á mikilli reykjarlykt í íbúðinni svo Halldór brá á það skynsamlega ráð að loka gluggum. Nágranni hans hafi tjáð honum að líklega hefði verið um gassprengingu að ræða. Halldór ákvað í framhaldinu að best væri að yfirgefa svæðið.

„Maður vissi eiginlega hvorki hvað sneri upp né niður. Það var sprenging, löggan var mætt og þetta virkuðu bara svakalegar aðstæður.“

Þegar blaðamaður spyr Halldór út í skemmdir á Volvo-bíl hans, sem varð fyrir gaskúti og skemmdist mikið, segir Halldór fyrir öllu að enginn hafi slasast. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir í samtali við Vísi í raun kraftaverk að ekki hafi orðið slys á fólki. 

Sjónarvottur lýsti því að mjóu hafi mátt muna. Gangandi vegfarendur áttu leið hjá þegar gaskúturinn þeyttist í um hundrað metra við sprenginguna.Vísir/Vilhelm

Gaskúturinn sem skaust í bíl Halldórs var ekki sá eini. Annar gaskútur fannst í um áttatíu metra fjarlægð frá byggingasvæðinu.

„Það er ekkert mál að skipta um bíl. Það er fyrir öllu að það sé í lagi með fólk.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×