Lýsti strax þakklæti til íslensku þjóðarinnar Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 15. janúar 2021 12:05 Sylwia og Guðmundur Felix. Guðmundur Felix Grétarsson er einstaklega þakklátur þeim stuðningi sem hann hefur fengið frá íslensku þjóðinni. Þetta segir Sylwia Nowakowska Gretarsson, eiginkona Guðmundar, í samtali við fréttastofu. Tímamót urðu á miðvikudag þegar Guðmundur Felix undirgekkst ágræðslu á báðum handleggjum alveg upp við axlir og var aðgerðin söguleg í heimi læknavísindanna. „
Ég talaði við hann í fyrsta skipti í morgun eftir aðgerðina. Hann hefur það mjög, mjög gott og var ótrúlega bjartsýnn og jákvæður,“ segir Sylwia í samtali við fréttastofu. Draumurinn rættist sléttum 23 árum síðar Guðmundur var aðeins 26 ára þegar hann missti báða handleggi. Hann starfaði þá sem rafvirki og hafði verið að vinna við háspennulínu skammt frá Hafravatni þegar hann varð fyrir raflosti og slasaðist lífshættulega. Hann hefur verið opinskár um slysið í gegnum tíðina og hafði verið á biðlista eftir aðgerð í fimm ár. Draumurinn rættist svo loks þegar hann fór í fimmtán klukkustunda aðgerð í Lyon í Frakklandi í fyrradag, 13. janúar, nánast sléttum 23 árum eftir slysið, sem varð þann 12. janúar 1998. „Ég er með skilaboð til íslensku þjóðarinnar. Felix segist vera einstaklega þakklátur öllum þeim stuðningi sem hann hefur fengið frá Íslendingum og segir að þetta hefði aldrei orðið að veruleika ef það væri ekki fyrir íslensku þjóðanna,“ segir hún. Táknrænn dagur Sylwia nefnir að dagurinn hafi ekki síður verið táknrænn. „Við höfðum allan tímann trú á að aðgerðin mundi ganga vel. Við hugsuðum aldrei hvað ef. En okkur þótti dagsetningin líka ótrúleg, að aðgerðin skuli hafa verið nánast sama dag og slysið varð.“ Hún segir það hafa verið óvænta ánægju að fá að sjá myndir af handleggjunum. „Þær líta mjög vel út,“ segir Sylwia. Aðspurð segist hún sjálf hafa það gott. Biðin eftir aðgerðinni hafi vissulega reynst erfið, og að þau hafi oft orðið pirruð og óþolinmóð en alltaf haldið í vonina. Hún segir mikla endurhæfingu fram undan en að aðgerðin muni breyta lífi þeirra til frambúðar. Þau séu staðráðin í að takast á við verkefnið í sameiningu, með bjartsýni og jákvæðni að leiðarljósi.
Frakkland Heilbrigðismál Íslendingar erlendis Handleggir græddir á Guðmund Felix Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Innlent Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Innlent Hver er Kári Hansen? Innlent Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Innlent Fleiri fréttir Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Sjá meira