Fjármögnun Landspítala verður þjónustutengd

María, Svandís og Páll undirrita samninginn.
María, Svandís og Páll undirrita samninginn. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Klínísk starfsemi Landspítala verður frá 1. janúar næstkomandi fjármögnuð í samræmi við umfang veittrar þjónustu þar sem byggt er á DRG; alþjóðlegu flokkunarkerfi sjúkdóma.

„Þessi breyting er bylting, jafnt fyrir spítalann og fjárveitingarvaldið. Markmiðið er að fjármögnun spítalans sé sanngjörn og raunhæf, í samræmi við þjónustuna sem sjúkrahúsið veitir og skýr markmið fjárveitingarvaldsins um magn hennar og gæði,“ er haft eftir Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í tilkynningu.

Hún undirritaði samning Sjúkratrygginga Íslands og Landspítala um innleiðingu þjónustutengdrar fjármögnunar Landspítala í dag. Í tilkynningunni er samningurinn sagður sá stærsti sem gerður hefur verið hér á landi, um kaup á heilbrigðisþjónustu.

Páll ánægður með samninginn.
Páll ánægður með samninginn. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Markvissari kaup á heilbrigðisþjónustu

Í heilbrigðisstefnu til ársins 2030 er sett markmið um að fjármögnun allrar sjúkrahússþjónustu verði þjónustutengd, enda séu greiðslukerfin þýðingarmikil tæki til að stýra þeim fjármunum sem ríkið vill verja til heilbrigðisþjónustu og hvernig þeir nýtast sjúklingum.

Bent er á að fjármögnun heilbrigðiskerfisins af hálfu hins opinbera verði að byggjast á skýrri sýn sem tryggi að fjármunum sé varið til þeirrar þjónustu sem mest þörf er fyrir á hverjum tíma og í samræmi við skynsamlega forgangsröðun.

Samningurinn um breytta fjármögnun Landspítala er sagður stór áfangi sem miði að þessu marki og samræmist ábendingum sem Ríkisendurskoðun hefur ítrekað gert um þörf fyrir markvissari kaup á heilbrigðisþjónustu sem byggjast á ítarlegri kostnaðar- og þarfagreiningu.

Helstu markmið og ávinningur breytinganna:

  • Fjárveitingar taka mið af raunverulegu umfangi þjónustu og raunkostnaði
  • Aukið gegnsæi við úthlutun fjármagns
  • Auðveldara að gera áætlanir og setja markmið um magn þjónustu í samræmi við þörf þeirra sem á henni þurfa að halda
  • Stuðlar að aukinni skilvirkni ásamt betra eftirlit með gæðum, umfangi og hagkvæmni þjónustunnar

Með samningnum verði fjármögnun Landspítala að stórum hluta þjónustutengd, þ.e.a.s. klíníski hluti starfseminnar, en verkefni sem t.d. tengjast hlutverki hans á sviði kennslu og vísinda, stofnkostnaðar og meiriháttar viðhalds verði fjármögnuð með föstum fjárveitingum eins og áður.

„Í stuttu máli byggist þjónustutengd fjármögnun á því að þjónusta/framleiðsla spítalans er greind niður í flokka samkvæmt sjúkdómaflokkunarkerfi. Hver flokkur lýsir umfangi þeirrar þjónustu sem liggur að baki, t.d. vegna tiltekinna aðgerða eða meðferðar við tilteknum sjúkdómum.

Umfangið er mælt í svokölluðum DRG einingum. Greiðslur fyrir aðgerð eða meðferð ráðast af fjölda DRG eininga þar sem einingaverðið er fast og fyrir liggur hvað margar DRG einingar hver aðgerð eða meðferð felur í sér að meðaltali,“ segir í tilkynningunni.

Sjúkrahúsið á Akureyri næst

Þjónustutengd fjármögnun sjúkrahúsþjónustu er vel þekkt víða um heim, þessi aðferð hefur verið innleidd í flestum Evrópuríkjum.

Norðurlandaþjóðirnar hafa um árabil unnið saman að innleiðingu á sameiginlegu DRG flokkunarkerfi, svonefndu NordDRG, sem Landspítali hefur stuðst við í kostnaðargreiningu innan spítalans.

Tekið er fram að unnið sé að því að innleiða einnig þjónustutengda fjármögnun Sjúkrahússins á Akureyri.

Björn Zoëga, for­stjóri Karólínska há­skóla­sjúkra­húss­ins í Stokk­hólmi, sagði í Dagmálum Morgunblaðsins fyrir rúmum mánuði að slíkt kerfi væri við lýði þar og hefði reynst vel.

Samningurinn var undirritaður í dag.
Samningurinn var undirritaður í dag. Ljósmynd/Stjórnarráðið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert