„Sjálfstæðisflokkurinn er lang stærsti flokkurinn á sveitarstjórnarstiginu“ Jakob Bjarnar skrifar 15. maí 2022 12:02 Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins er keikur þó tap blasi við flokknum að loknum sveitarstjórnarkosningum. Hann vill meina að tapið sé miklu minna en umræðan gefur til kynna. Vísir/Vilhelm Í mörgum stærstu sveitarfélögunum blasti tap Sjálfstæðisflokksins við, þeir töpuðu bæjarfulltrúum fyrir borð vinstri hægri eins og í Reykjavík, töpuðu manni í Hafnarfirði, Kópavogi … en það breytir ekki þeirri staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn er eftir sem áður stærsti flokkurinn á sveitarstjórnarstiginu.
Sjálfstæðisflokkurinn tapaði meira að segja í Garðabæ, höfuðvígi flokksins, en Bjarni Benediktsson formaður flokksins mætti ekki brotinn í Silfur Ríkisútvarpsins, nema síður sé. Sjálfstæðisflokkurinn með 110 bæjarfulltrúa á landsvísu Bjarni var hinn brattasti. Sagði jú vissulega að þar hefðu þau gjarnan viljað vera yfir 50 prósentunum eins og raun varð, en sjö bæjarfulltrúar af ellefu sé frábær árangur hvernig sem á það er litið og í hvaða samhengi sem er. Bjarni sagði að ef litið sé til landsins í heild sinni og „þessi framboð“ ólíkra flokka undir einhverjum listabókstöfum eru sett til hliðar þá sé staðreynd málsins sú að Sjálfstæðisflokkurinn sé að tapa sex fulltrúm á landsvísu. „Og er með 110 bæjarfulltrúa sem er 40 prósentum meira en Framsókn, það sé fjórum sinnum meira en Samfylkingin. Sjálfstæðisflokkurinn er lang stærsti flokkurinn á sveitarstjórnarstiginu,“ sagði Bjarni sem vildi meina að tapið væri fráleitt eins mikið og umræðan beri með sér. Foringjar ríkisstjórnarinnar auk Loga Einarssonar formanns Samfylkingarinnar, voru mættir til Egils Helgasonar hjá Ríkissjónvarpinu til að fara yfir stöðuna að loknum sveitarstjórnarkosningum. „Fjórflokkurinn í öllu sínu veldi,“ sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, formaður Vinstri grænna, við það tækifæri. Allt samkvæmt áætlun hjá Framsóknarflokknum Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins reyndi ekki að leyna ánægju sinni enda erfitt annað. Flokkurinn tvöfaldaði fylgi sitt og bætti við sig 22 fulltrúum frá síðustu kosningum. Sigurður Ingi sagðist sammála, að um væri að ræða stórkostlegan árangur síns flokks á höfuðborgarsvæðinu og víða um land. En þetta væri ekkert endilega óvænt. Hann upplýsti að það hafi verið verkefni Framsóknarmanna í langan tíma að styrkja stöðu sína á höfuðborgarsvæðinu án þess að það „komi niður á landsbyggðinni“. Vinstri græn riðu ekki feitum hesti frá þessum kosningum en Katrín benti á að Vinstri græn væru víða í hópi blandaðra framboða um landið og þau séu sátt við sinn árangur. „Ég hefði að sjálfsögðu viljað uppskera meira,“ sagði Katrín en vildi minna á að síðustu sveitarstjórnarkosningar hefðu reynst Vinstri grænum afar erfiðar og í því samhengi væri þetta ekki svo slæmt. Þannig fundu allir foringjar stjórnmálaflokkanna jákvæðar hliðar á niðurstöðu sveitarstjórnarkosninga fyrir sig og sína, eins og venju ber til.
Sveitarstjórnarkosningar 2022 Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Sjálfstæðisflokkurinn Sveitarstjórnarmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Erlent Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Lýsa eftir Sigurði Fannari Innlent Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Innlent Fleiri fréttir Vann fimmtíu milljónir króna „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Drengurinn er fundinn Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið Brottvísun hælisleitenda og dræm þátttaka í utankjörfundi Bein útsending: Má ég taka þátt... í lífinu? Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Beint streymi: Uppfinningar og einkaleyfi Landris heldur áfram á sama hraða Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Friðlýsir hluta Fjaðrárgljúfurs Sjá meira