Simmi Vill er Mosfellingur ársins

Simmi Vill tók við verðlaunum í dag.
Simmi Vill tók við verðlaunum í dag. Ljósmynd/Aðsend

Sigmar Vilhjálmsson hefur verið útnefndur Mosfellingur ársins 2020. Það er bæjarblaðið Mosfellingur sem stendur fyrir valinu. Simmi Vill opnað nýlega veitingastaðinn Barion í gömlu Arion banka húsi í Mosfellsbæ. Frá þessu er greint á vefnum Mosfellingur.

„Það er skemmst frá því að segja að viðbrögðin við Barion hafa verið fram úr björtustu vonum, þrátt fyrir að standa frammi fyrir stórum rekstraráskorunum vegna COVID-19,“ segir Simmi Vill.

„Við lögðum upp með að skapa stað fyrir alla Mosfellinga, bjóðum upp á fjölbreyttan matseðil á góðu verði, góða þjónustu ásamt því að standa fyrir alls konar viðburðum. Okkur hefur verið tekið rosalega vel og fyrir það erum við þakklátir. Á árinu opnuðum við einnig Barion Bryggjuna og Minigarðinn, en þess má geta að höfuðstöðvar fyrirtækisins eru og verða í Mosó.“

Þá hefur Simmi að undanförnu vakið mikla athygli á Instagram þar sem hann er duglegur að deila frá sínu daglega lífi. Sigmar er fæddur og uppalinn á Egilsstöðum en hefur búið í Mosfellsbæ frá árinu 2007. „Ég var að leita eftir þessum bæjarbrag og langaði að synir mínir myndu alast upp í svona samfélagi. Ég kann vel við það að þekkja nágranna mína og það fólk sem ég rekst á í búðinni. Það er hluti af því að tilheyra samfélagi að gefa af sér. Ég hef reynt að vera virkur í kringum íþróttastarf strákanna minna og er alltaf opinn fyrir góðum hugmyndum og skemmtilegu samstarfi,“ segir Simmi sem segist alls ekki geta flutt úr bænum núna eftir þessa nafnbót.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg