Allir umsækjendur með stúdentspróf sem fengu synjun fá skólavist Sylvía Hall skrifar 10. júlí 2020 14:10 Háskólinn á Akureyri mun veita öllum umsækjendum með stúdentspróf skólavist. Háskólinn á Akureyri
Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti á fundi sínum í morgun að allir umsækjendur með stúdentspróf munu fá jákvætt svar um skólavist fyrir lok dags í dag. Þrátt fyrir fjölgun samþykktra umsókna þurfti að synja 600 um skólavist. Þetta kemur fram á vef Háskólans á Akureyri þar sem segir að meirihluti þeirra sem fengu synjun hafi uppfyllt inntökuskilyrði skólans. Eftir samtöl við stjórnvöld um stöðuna í samfélaginu og stöðu Háskólans á Akureyri var ákveðið að samþykkja umsóknir allra þeirra sem eru með stúdentspróf. Staða Háskólans á Akureyri hefur verið til umræðu, þá sérstaklega eftir að dúx frá Framhaldsskólanum á Húsavík komst ekki inn í skólann þrátt fyrir góðan námsárangur og nær fullkomna ástundun. „Síðustu tvær vikur hefur átt sér stað mikil og góð umræða um stöðu Háskólans á Akureyri og þá staðreynd að mikil aðsókn síðustu ár hefur þrengt að möguleikum okkar til að fjölga nemendum enn frekar. Yfirlýsing stjórnvalda og stuðningur menntamálaráðherra við skólann og háskólakerfið í heild opna þann möguleika að unnt verði að fjölga nemendum í haust,“ er haft eftir Eyjólfi Guðmundssyni rektor. Staða umsækjenda með ígildi stúdentsprófs verður skoðuð Stefnt er að því að bæta einnig úr stöðu þeirra sem eru ekki með stúdentspróf eða eru með nám frá háskólabrúm annarra háskóla en háskólinn hafði einnig verið gagnrýndur fyrir að taka ekki á móti nemendum með ígildi stúdentsprófs. Munu þeir fá svar frá háskólanum eftir 10. ágúst þegar mati á þeim umsóknum út frá inntökuskilyrðum er lokið, en fjöldatakmarkanir eru í gildi í hjúkrunarfræði, sálfræði og lögreglufræði. Í tilkynningu segir að ákvörðunin byggi á skuldbindingu stjórnvalda stjórnvalda um fjármögnun háskóla og þeim aðstæðum sem eru uppi í íslensku samfélagi eftir kórónuveirufaraldurinn. Þó er ljóst að Háskólinn mun þurfa að beita aðgangstakmörkunum haustið 2021 nema aukin fjárframlög komi til í fjárlögum. „Háskólaráð setur því traust sitt á ríkisstjórn, menntamálaráðherra og Alþingi um að fjármögnun háskólans sé tryggð þannig að háskólinn geti haldið áfram að sinna því hlutverki að veita aðgengi að háskólanámi í sínu nærsamfélagi sem og í byggðum um land allt í gegnum stafræna miðlun náms og uppbyggingar háskólasamfélaga.“
Skóla - og menntamál Tengdar fréttir Þurftu að stöðva flóðið Rektor Háskólans á Akureyri segir að skólinn vilji að sjálfsögðu veita öllum sem sækja þar um nám inngöngu. Fjármagn skorti hins vegar til þess, nánar tiltekið 600 milljónir króna. 3. júlí 2020 16:43 Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Alltaf er manni sagt að maður geti orðið það sem maður vill, við ölum upp börnin okkar á þessum orðum. 3. júlí 2020 10:30 Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Fleiri fréttir Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað 546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Steinunn Ólína hálfu skrefi frá því að bjóða sig fram Baldur mælist með langmest fylgi Stálu áli í Grindavík en gómaðir af lögreglu Sjá meira
Þurftu að stöðva flóðið Rektor Háskólans á Akureyri segir að skólinn vilji að sjálfsögðu veita öllum sem sækja þar um nám inngöngu. Fjármagn skorti hins vegar til þess, nánar tiltekið 600 milljónir króna. 3. júlí 2020 16:43
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Alltaf er manni sagt að maður geti orðið það sem maður vill, við ölum upp börnin okkar á þessum orðum. 3. júlí 2020 10:30