Ekkert hægt að útiloka varðandi Grímsvötn næstu mánuðina Fanndís Birna Logadóttir skrifar 6. desember 2021 12:16 Jökulhlaupið úr Grímsvötnum náði hámarki í gær en skjálftavirkni hófst á svæðinu í morgun. Vísir/RAX Viðvörunarstig vegna Grímsvatna hefur verið fært yfir í appelsínugulan lit fyrir alþjóðaflug vegna skjálftavirkni sem hófst á svæðinu í morgun. Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni segir engan gosóróa mælast á svæðinu að svo stöddu en ekki sé hægt að útiloka neitt þegar kemur að Grímsvötnum.
Svo virðist sem að jökulhlaupið í Grímsvötunum hafi náð hámarki í gærmorgun og er íshellan búin að síga um 77 metra frá því að hún mældist hæst. Verulega hefur hægt á siginu síðan í gær sem bendir til þess að vötnin séu að mestu búin að tæma sig. Einar Bessi Gestsson, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni, segir skjálftavirkni hafa hafist á svæðinu upp úr klukkan sex í morgun þegar skjálfti af stærðinni 3,6 mældist. Nokkuð af eftirskjálftum fylgdu í kjölfarið en enginn gosórói hefur mælst á svæðinu „Þetta er lítillega meiri skjálftavirkni en við sjáum vanalega í Grímsvötnum og það sem við gerum í rauninni núna er bara að fylgjast áfram með stöðunni og sjá hvernig þetta þróast, það er það eina sem við getum gert núna,“ segir Einar. Veðurstofan hækkaði í morgun viðvörunarstig vegna alþjóðaflugs yfir í appelsínugulan lit eftir að skjálftavirknin hófst en appelsínugulur litur þýðir að skjálftavirknin sé umfram það sem venjuleg virkni er. Gera má ráð fyrir að viðvörunarstigið haldist appelsínugult ef virknin heldur áfram en næsta stig fyrir ofan er rautt, sem táknar að eldgos sé hafið. „Ég býst við því að ef að skjálftavirknin heldur áfram í dag og eitthvað næstu daga þá muni það vera svoleiðis, en ef að skjálftavirknin fjarar út þá mun kóðinn vera lækkaður aftur,“ segir Einar Bessi. „Þetta er samkvæmt verkferlum að hækka kóðann og svo sjáum við bara til núna hvað gerist og breytum honum þá eftir því sem atburðurinn þróast.“ Gos beint eftir hlaup átti sér síðast stað árið 2004 en það gaus þó síðast úr Grímsvötnum árið 2011, um sex mánuðum eftir hlaup úr jöklinum árið 2010. Þó er erfitt að segja hvort eldgosið þá hafi verið bein afleiðing af hlaupinu 2010 þar sem nokkrir mánuðir liðu á milli. „En burtséð frá hlaupinu þá er það talið að eldstöðin í Grímsvötnum hafi þannig séð verið tilbúin til þess að gjósa þegar kemur að þenslu og öðrum mælingum á eldstöðinni þannig það er í rauninni ekkert hægt að útiloka varðandi Grímsvötn næstu mánuðina, við verðum bara að sjá hvað setur,“ segir Einar Bessi.
Grímsvötn Eldgos og jarðhræringar Tengdar fréttir Skjálfti 3,6 að stærð í Grímsvötnum Skjálfti 3,6 að stærð varð í Grímsvötnum klukkan 6:16 í morgun. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið, sá stærsti 2,3 að stærð. Ekki hefur mælist gosórói á svæðinu. 6. desember 2021 07:28 Hlaupið náð hámarki og á hraðri niðurleið: Sjáðu myndir RAX frá Grímsvötnum Íshellan í Grímsvötnum hefur sigið um 75 metra og hlaupið þar náði að öllum líkindum hámarki liðna nótt. Ragnar Axelsson ljósmyndari, þekktur undir nafninu RAX, flaug yfir svæðið í gær og myndaði sprungur ofan í Grímsvötnum, undir klettabeltum við skálana á Grímsfjalli. 5. desember 2021 21:15 RAX Augnablik: Gos í Grímsvötnum og Gjálp Mikið er fjallað um Grímsvötn þessa dagana og möguleikana á gosi. Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson hefur myndað mörg eldgos á ferlinum, þar á meðal í Grímsvötnum árið 2011. 5. desember 2021 07:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Erlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Erlent Stjórn Íslensku óperunnar afar gagnrýnin á frumvarp um Þjóðaróperu Innlent „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Innlent Fleiri fréttir Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni takast á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Bein útsending: Bjarkey kynnir lagareldisfrumvarpið Neyðast óvænt til að tæma laugina Bein útsending: Þrjátíu ár af EES-samstarfi Drógu fiskibát sem fékk veiðarfæri í skrúfuna til hafnar Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Stjórn Íslensku óperunnar afar gagnrýnin á frumvarp um Þjóðaróperu Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Sjá meira
Skjálfti 3,6 að stærð í Grímsvötnum Skjálfti 3,6 að stærð varð í Grímsvötnum klukkan 6:16 í morgun. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið, sá stærsti 2,3 að stærð. Ekki hefur mælist gosórói á svæðinu. 6. desember 2021 07:28
Hlaupið náð hámarki og á hraðri niðurleið: Sjáðu myndir RAX frá Grímsvötnum Íshellan í Grímsvötnum hefur sigið um 75 metra og hlaupið þar náði að öllum líkindum hámarki liðna nótt. Ragnar Axelsson ljósmyndari, þekktur undir nafninu RAX, flaug yfir svæðið í gær og myndaði sprungur ofan í Grímsvötnum, undir klettabeltum við skálana á Grímsfjalli. 5. desember 2021 21:15
RAX Augnablik: Gos í Grímsvötnum og Gjálp Mikið er fjallað um Grímsvötn þessa dagana og möguleikana á gosi. Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson hefur myndað mörg eldgos á ferlinum, þar á meðal í Grímsvötnum árið 2011. 5. desember 2021 07:01