Sýknaður af nauðgun á sambýliskonu sinni Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 23. október 2020 22:12 Landsréttur sýknaði í dag mann sem var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa nauðgað þáverandi sambýliskonu sinni. Vísir/Vilhelm
Landsréttur sýknaði í dag mann sem var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur í mars 2019 fyrir að hafa nauðgað þáverandi sambýliskonu sinni með því að beita hana ofbeldi og ólögmætri nauðung. Framburður sonar konunnar sem vísað var til í dómi héraðsdóms var ekki talinn styðja framburð móður hans. Fram kemur í dómi Landsréttar að niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu hafi byggst á framburði konunnar sem metinn var trúverðugur, auk þess sem vísað var til þess að framburður sonar hennar styddi framburð hennar, og skýrslur vitna sem konan hafði verið í samband við á umræddum tíma. Landsréttur telur að óljóst sé hvort þau orðaskipti sem sonur konunnar bar um að hafa heyrt hefðu varðað málsatvik sem ákæran náði til eða önnur átök milli þáverandi sambýlisfólksins. Þótti óvarlegt að leggja til grundvallar að framburður hans styddi framburð móður hans. Þá væru framburðir vitnanna tveggja byggðir eingöngu á endursögn konunnar á atvikum auk þess sem vitnin mundu illa eftir atvikum við skýrslugjöf fyrir héraðsdómi. Þá hafi ekki verið ljós hvort framburður þeirra ætti við um nauðgunina sem sambýlismaðurinn var ákærður fyrir eða nauðganir sem konan kærði hann fyrir en leiddu ekki til ákæru. Maðurinn var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í tveggja og hálfs árs langt fangelsi fyrir nauðgunina. Hann var ákærður fyrir að hafa farið upp í rúm til konunnar að nóttu til í ágúst 2015 þar sem hann beitti hana ofbeldi og ólögmætri nauðung. Þegar konan gaf fyrst skýrslu hjá lögreglu lýsti hún því að maðurinn hafi ruðst inn í herergi hennar, rifið fötin utan af henni og þvingað hana til kynferðismaka. Þá sagði hún son sinn hafa verið heima og hann hefði orðið var við það sem gekk á. Hún sagði jafnframt að maðurinn hafi nauðgað henni þrisvar sumarið 2015.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Fleiri fréttir „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Sjá meira