Rændi þrettán ára stelpu og læsti í skúr í tvær vikur Bjarki Sigurðsson skrifar 14. mars 2023 23:33 Jorge Ivan Santos Camacho og skúrinn þar sem stelpan fannst. Skjáskot/NBC Karlmaður í Norður-Karólínu fylki í Bandaríkjunum var á föstudaginn handtekinn grunaður um að hafa rænt þrettán ára stelpu, brotið gegn henni kynferðislega og læst hana inni í skúr í tvær vikur. Maðurinn á yfir höfði sér fjölda ákæra fyrir brot sín.
Jorge Ivan Santos Camacho kynntist þrettán ára gamalli stúlku frá Dallas á internetinu og sannfærði hana um að flýja að heiman til að búa með sér. Hún yfirgaf heimili sitt 1. mars síðastliðinn og sást ekki aftur fyrr en á föstudaginn í síðustu viku. Hann hafði flutt stelpuna frá Dallas í Texas til Norður-Karólínu en rúmlega 1.700 kílómetrar eru á milli staðanna. Þegar stúlkan fannst var hún læst inni í skúr á lóð þar sem Camacho bjó og hafði verið nauðgað. Rannsóknarlögreglumenn komust á sporið eftir að móðir stúlkunnar gat veitt þeim aðgang að samfélagsmiðlum hennar. Þar fundust skilaboð milli stúlkunnar og Camacho. Það var síðan Alríkislögreglunni sem tókst að finna út hvar hann ætti heima. Í samtali við WXII 12 segir konan sem leigði Camacho húsnæði að hana hafi aldrei grunað að hann væri afbrotamaður. „Hann bjó með mér í tvö ár, hann sýndi ekki að hann væri svona manneskja svo ég veit ekki ekki hvers vegna hann gerði það,“ segir konan en Camacho bjó ekki í sama húsnæði og konan en á sömu lóð. NBC greinir frá því að Camacho eigi von á því að eyða restinni af ævi sinni í fangelsi en hann verður ákærður fyrir að ræna barni, halda barni gegn vilja þess, mansal, nauðgun og fleira.
Bandaríkin Erlend sakamál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira