Enn einn stórleikur Óðins

Óðinn Þór Ríkharðsson í leik með íslenska landsliðinu.
Óðinn Þór Ríkharðsson í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Óttar Geirsson

Óðni Þór Ríkharðssyni, landsliðsmanni í handknattleik, halda engin bönd um þessar mundir og í kvöld raðaði hann sem fyrr inn mörkum fyrir Kadetten Schaffhausen er liðið vann Suhr Aarau með minnsta mun, 28:27, í svissnesku A-deildinni.

Að þessu sinni skoraði Óðinn Þór níu mörk og var langmarkahæstur í leiknum.

Hann er nú búinn að skora 120 mörk í 14 deildarleikjum á tímabilinu, sem gerir 8,6 mörk að meðaltali í leik.

Kadetten, sem Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar, er sem fyrr í öðru sæti svissnesku deildarinnar, fimm stigum á eftir Kriens, sem er þegar búið að tryggja sér deildarmeistaratitilinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert