Bitin í rassinn af birni Samúel Karl Ólason skrifar 20. febrúar 2021 07:58 Þegar birti sáust bjarnarspor víða í kringum tjaldið og tveimur dögum seinna barst dýraeftirliti Alaska tilkynning um björn skammt frá staðnum þar sem Shannon taldi sig hafa verið bitna í rassinn. AP/Erik Stevens/Julia Heinz Kona sem var í útilegu í Alaska í síðustu viku særðist á rassi þegar hún gekk örna sinna í kamri í óbyggðum ríkisins og telur að björn, sem var búinn að koma sér fyrir í kamrinum, hafi bitið sig.
Í samtali við AP fréttaveituna segir Shannon Stevens frá því að hún hafi verið í útilegu með bróður sínum og kærustu hans. Snemma að morgni 13. febrúar fór hún út á kamarinn, og um leið og hún settist niður segist hún hafa fundið eitthvað bíta sig í rassinn. Hún öskraði og bróður hennar Erik kom hlaupandi. Í fyrstu töldu þau að eitthvað lítið dýr, eins og íkorni eða minkur hefði bitið hana en þegar bróðir konunnar lyfti setu kamarsins horfði hann beint framan í björn. Þau hlupu því inn í tjaldið og hlúðu að sári Stevens, sem var ekki alvarlegt. Sjá einnig: Tvisvar bitinn í typpið af kónguló Þegar birti til og þau fóru út úr tjaldinu sáu þau bjarnaspor í kringum tjaldið en björninn var farinn. Þau telja að björninn hafi komist inn í kamarinn í gegnum gat aftan á honum. Dýralífssérfræðingurinn Carl Koch segir að líklega sé um svartbjörn að ræða. Hann vinnur hjá dýraeftirliti Alaska og segir að honum hafi borist önnur tilkynning um svartbjörn á svæðinu tveimur dögum seinna. Sjá einnig: Bitinn í typpið af snáki sem kom upp úr klósettinu Koch segir þar að auki að líklega hafi björninn ekki bitið Stevens í rassinn, heldur klórað hana. Hvort sem er, hafi hann aldrei heyrt annað eins. Eftir því sem hann best viti sé Stevens sú eina í heiminum sem hafi lent í þessu að vetri til. Þessi björn ætti að vera í dvala en Koch segir að mögulega hafi hann ekki geta byggt upp nógu mikla fitu til að halda sér í dvala allan veturinn.
Bandaríkin Dýr Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Óljóst hvort þyrlan sé fundin Erlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Sjá meira