„Gríðarlegur léttir að málinu sé lokið“ Sigurður Orri Kristjánsson skrifar 25. mars 2023 12:41 Jónsi í Sigur Rós var ásamt öðrum meðlimum hljómsveitarinnar sakaður um stórfelld skattsvikabrot. Bjarnfreður Ólafsson, lögmaður Jóns, segir mikinn létti að málinu sé lokið. vísir/vilhelm Margra ára skattsvikamáli hljómsveitarinnar Sigur rósar lauk í gær þegar að Landsréttur vísaði kröfu ríkisskattstjóra frá dómi. Lögmaður Jóns Þórs Birgissonar, eða Jónsa í Sigur rós eins og hann er oftast kallaður, segir skattstjóra hafa of víðtækar heimildir til kyrrsetningar.
Málið hefur staðið ansi lengi og höfðu eignir Jóns verið kyrrsettar allt frá árinu 2017 en meðlimir hljómsveitarinnar voru grunaðir um að hafa ekki greitt skatt upp á rúmlega 150 milljónir króna. Máli allra annarra hljómsveitarmeðlima en Jóns voru felld niður árið 2021 en málinu gegn honum var haldið til streitu. Bjarnfreður Ólafsson, lögmaður Jónsa, segir mikinn létti að málinu sé lokið. „Þetta er búið að taka gríðarlega langan tíma. Bara það að standa í þessu er gríðarleg refsing fyrir hvern þann sem þarf að hafa þetta hangandi yfir sér. Háar fjársektir sem eru lágmark ef menn eru dæmdir sekir, í þessu tilfelli hefði það hlaupið á hundruðum milljóna. Þetta er gríðarlegur léttir. “ Alvanalegt sé þó að skattrannsóknir taki langan tíma. „Það er því miður ekki óvenjulegt að þessi mál taki svona langan tíma. Það er verið að vinna í því að einfalda þetta í kerfinu en það gengur allt of hægt að finna fljótari jarðveg fyrir þessi mál. Þetta er of langt ferli. “ En kom áfrýjun yfirvalda á óvart? „Já þeir áfrýjuðu stórum hluta ekki en ákváðu að láta reyna á ákveðna þætti gagnvart Jóni Þór. Það voru gríðarleg vonbrigði og við töldum það ástæðulausa áfrýjun.“ Heimildir yfirvalda séu mjög víðtækar. „Heimildirnar þurfa að vera bundnar einhverjum skilyrðum og það þarf að sýna fram á nauðsyn. Það er mjög erfitt að snúa kyrrsetningum við, þetta eru það víðtækar heimildir.
Sigur Rós Dómsmál Skattamál Sigur Rósar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Fleiri fréttir Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Sjá meira