Landsvirkjun greiðir sex milljarða króna arð til ríkisins Eiður Þór Árnason skrifar 15. apríl 2021 17:25 Jónas Þór Guðmundsson var endurkjörinn stjórnarformaður Landsvirkjunar. Vísir/vilhelm Landsvirkjun mun greiða 6,34 milljarða króna arðgreiðslu til íslenska ríkisins fyrir árið 2020. Eigendur samþykktu tillögu stjórnar þess efnis á aðalfundi Landsvirkjunar sem haldinn var í dag. Arðurinn er ákvarðaður í Bandaríkjadölum og nemur hann 50 milljónum dala í ár.
Á aðalfundinum skipaði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra í stjórn Landsvirkjunar samkvæmt lögum um fyrirtækið en ekki voru gerðar breytingar á skipan stjórnar frá fyrra starfsári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun. Aðalmenn í stjórn Landsvirkjunar eru því áfram Jónas Þór Guðmundsson, Álfheiður Ingadóttir, Jón Björn Hákonarson, Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir og Gunnar Tryggvason. Á fyrsta fundi stjórnar eftir aðalfundinn var Jónas Þór Guðmundsson endurkjörinn formaður stjórnar og Álfheiður Ingadóttir endurkjörin varaformaður. Tekjur lækkuðu um sjö milljarða króna Fram kemur í ársreikningi Landsvirkjunar að rekstrartekjur samstæðunnar lækkuðu um 56,1 milljón Bandaríkjadala á síðasta ári eða 7.141 milljón íslenskra króna. Námu tekjur 453,5 milljónum Bandaríkjadala samanborið við 509,6 milljónir árið 2019. Rekstrargjöld námu 256,2 milljónum Bandaríkjadala á árinu 2020 en voru 265,9 milljónir Bandaríkjadala árið 2019. Rekstrarhagnaður fyrirtækisins var því 197,4 milljónir Bandaríkjadala á árinu 2020 samanborið við 243,7 milljónir árið á undan. Eigið fé stóð í stað og nam 2.235,1 milljón Bandaríkjadala í árslok 2020 en 2.235,4 milljónum í árslok 2019 samkvæmt efnahagsreikningi. Orkuverð lækkað á mörkuðum Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar segir í ársskýrslu fyrirtækisins fyrir árið 2020 að rekstur og afkoma Landsvirkjunar hafi óhjákvæmilega litast af áhrifum heimsfaraldursins. „Viðskiptavinir okkar drógu margir úr framleiðslu vegna minnkandi eftirspurnar og lækkandi afurðaverðs, auk þess sem orkuverð lækkaði mjög á mörkuðum, þótt sú þróun hafi að nokkru gengið til baka síðla árs. Hluti raforkusamninga Landsvirkjunar er tengdur álverði og verði á raforku á Nord Pool-markaði.“ Þá hafi Landsvirkjun veitt viðskiptavinum sínum tímabundinn afslátt af rafmagnsverði til að koma til móts við stöðu þeirra og tekið þátt í átaki fyrir efnahagslífið með því að ráðast í ýmsar framkvæmdir og verkefni víðs vegar um landið. Fréttin hefur verið uppfærð.
Orkumál Landsvirkjun Tengdar fréttir Landsvirkjun og Norðurál birta orkusamninga Norðurál og Landsvirkjun hafa aflétt trúnaði af raforkusamningum fyrirtækjanna. Báðir aðilar segjast vonast til að birtingin styðji við og auki upplýsta umræðu um orkumál á Íslandi. 2. mars 2021 11:54 Mikill gleðidagur í Straumsvík og léttir að óvissu um ÍSAL var eytt Óvissu um framtíð álversins í Straumsvík var eytt í dag með nýjum raforkusamningi Landsvirkjunar og Rio Tinto og verður álframleiðslan sett á fulla ferð að nýju. Rannveig Rist forstjóri segir þetta mikinn gleðidag. 15. febrúar 2021 20:50 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viðskipti innlent Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Viðskipti innlent Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Samstarf Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Fleiri fréttir Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Sjá meira
Landsvirkjun og Norðurál birta orkusamninga Norðurál og Landsvirkjun hafa aflétt trúnaði af raforkusamningum fyrirtækjanna. Báðir aðilar segjast vonast til að birtingin styðji við og auki upplýsta umræðu um orkumál á Íslandi. 2. mars 2021 11:54
Mikill gleðidagur í Straumsvík og léttir að óvissu um ÍSAL var eytt Óvissu um framtíð álversins í Straumsvík var eytt í dag með nýjum raforkusamningi Landsvirkjunar og Rio Tinto og verður álframleiðslan sett á fulla ferð að nýju. Rannveig Rist forstjóri segir þetta mikinn gleðidag. 15. febrúar 2021 20:50