Skýrsla Vals: Kennarinn stóðst grunnskólapróf Valur Páll Eiríksson skrifar 26. mars 2023 21:30 Arnar Þór Viðarsson stýrði Íslandi til sigurs í þriðja sinn í keppnisleik í dag. Allir þrír hafa verið gegn Liechtenstein. EPA-EFE/Robert Ghement Ísland setti met yfir stærð sigurs í keppnisleik í Liechtenstein í dag. En andstæðingurinn var einkar slakur.
Ísland hafði töluverðu að tapa en ekki að eins miklu að vinna þegar liðið sótti Liechtenstein heim til Vaduz í dag. Hatrömm umræða skapaðist eftir 0-3 tap liðsins fyrir Bosníu á fimmtudaginn var og víða var kallað eftir nýjum landsliðsþjálfara. Liechtenstein er ekki með gott fótboltalið. Það tapaði 6-0 fyrir Grænhöfðaeyjum í fyrra og raunar öllum leikjum sem liðið spilaði á síðasta ári. Síðast vann það leik árið 2020. Fáir efuðust líklega um að Ísland myndi vinna leikinn en eftir frammistöðu fimmtudagsins var misstig samt ekkert óhugsandi. Fyrst Kasakar gátu unnið Dani í dag er margt hægt. En strákarnir skiluðu sínu og náðu í fyrstu stigin í pokann góða. Aron Einar kom með mikið að borðinu og allt annað líf þegar hann er með. Forystuhlutverk hans aftast á vellinum er afar mikilvægt og svo skemmdi ekki fyrir að hann fjölgaði landsliðsmörkum sínum úr tveimur í fimm í Vaduz nú síðdegis. Maður tók eftir því hvað allt varð hljóðlátara á vellinum eftir að hann fór út af; hann talar stanslaust meðan hann er inni á. Jón Dagur var frábær í leiknum – stoðsendingaþrenna landsliðsmanns sést ekki á hverjum degi. Guðlaugur Victor var virkilega góður með Aron sér við hlið, enda þurfti hann ekki að eyða allri sinni orku í að reyna að stýra tveimur miðvörðum úr bakverðinum líkt og á fimmtudag. Stefán Teitur fannst mér smá óstyrkur í byrjun en vann svo mjög vel á. Átti fantaleik. Hákon Arnar skoraði þá tvö geggjuð mörk og hefði átt að skora það þriðja, eitt auðvitað dæmt af út af smotteríi. En maður er afar spenntur fyrir hans framtíð þarna á miðjunni. Í dag vannst stærsti sigur í sögu Íslands í keppnisleik karlalandsliðs. Svo strákarnir fengu tíu á þessu prófi. Liechtenstein er samt svo ótrúlega lélegt fótboltalið að það er erfitt að taka fullt mark á þessu. Þetta er svolítið eins og að framhaldsskólakennari fái tíu í einkunn á grunnskólaprófi. Það er erfitt að meta stöðuna á íslenska liðinu þar sem Bosníuleikurinn var svo slakur. Það hefði þurft sterkara lið en Liechtenstein til að geta lagt trúverðugt mat á stöðuna. Þessi leikur gefur góðan anda og sjálfstraust í hópinn en hann skiptir þannig séð ekki miklu máli í stóra samhenginu. Þetta eru þrjú stig gegn liði sem allir aðrir í riðlinum munu einnig fá. Það sýnir sig í viðtali við Guðlaug Victor Pálsson eftir leik þar sem pirringur yfir „barnalegri frammistöðu“ í Bosníu-leiknum virtist honum ofar í huga en gleði yfir úrslitum dagsins. Því standa því miður enn eftir efasemdir um vegferðina sem liðið er á og hvert framhaldið á að vera. Arnar Þór vann í kvöld sinn þriðja keppnisleik með Íslandi en allir þrír hafa komið gegn Liechtenstein. Hjá heimamönnum var gerð tvöföld skipting snemma í síðari hálfleik þar sem leikmennirnir tveir sem komu inn á voru annars vegar leikmaður 5. deildarliðs í Sviss og hinn leikmaður varaliðs Vaduz. Það er staðallinn sem íslenska landsliðið var mælt við í dag. Stjórn KSÍ tekur eflaust stöðuna eftir þetta verkefni en hvað hún er hugsa er erfitt að vita. Ívar Ingimarsson var eini stjórnarmaðurinn sem var með í för í þessu verkefni en hann vildi ekki veita Vísi viðtal í gær. Úrslit kvöldsins í riðlinum hefðu ekki getað verið betri en sigur Slóvaka á Bosníu galopnar þetta allt saman. En það segir kannski sitt að slóvakíska liðið, sem gerði markalaust jafntefli við Lúxemborg á fimmtudag, vinnur svo Bosníu sannfærandi. Slóvakía er einmitt næsta verkefni Íslands heima á Laugardalsvelli á þjóðhátíðardaginn. Það er næsta víst að KSÍ verður áfram með Arnar Þór sem þjálfara liðsins í því verkefni en það er leikur sem verður einfaldlega að vinnast. Þar undirgengst framhaldsskólakennarinn raunverulegt próf.
Landslið karla í fótbolta EM 2024 í Þýskalandi Mest lesið Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Enski boltinn Tiger og McIlroy hunsuðu hvorn annan Golf Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Handbolti Upphafshöggi frestað vegna banaslyss skammt frá vellinum Golf Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti Stjarnan handtekin á leiðinni á völlinn: „Hann er á leið í fangelsi“ Golf NFL tekur ekki undir umdeild ummæli Butker Sport Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar Körfubolti Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fótbolti Fleiri fréttir Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fyrsta HM stelpnanna okkar verður vonandi í Brasilíu 2027 Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Sjá meira