Pétur Einarsson leikari látinn Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 25. apríl 2024 14:17 Pétur var valinn heiðursfélagi Leikfélags Reykjavíkur 2017. Pétur Einarsson, leikari, leikstjóri og fyrrverandi skólastjóri Leiklistarskóla Íslands er látinn, 83 ára að aldri. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Mörk 24. apríl síðastliðinn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum Péturs. Henni fylgir æviágrip um líf hans og störf, en hann var umsvifamikill á sviði leiklistar hér á landi. Pétur fæddist 31. október 1940 í Vestmannaeyjum, sonur Einars Guttormssonar læknis og Margrétar Kristínar Pétursdóttur húsmóður. Pétur lauk námi frá Leiklistarskóla LR og stundaði leiklistarnám í Háskólanum í Georgíu í Bandaríkjunum. Pétur kom víða við á ferlinum en hann vann lengst af hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Hann lék á tíunda tug hlutverka í leiksýningum félagsins. Má þar nefna Dúfnaveisluna, Atómstöðina, Selurinn hefur mannsaugu, Pétur og Rúna og Hart í bak. Hann lék Greger Werle í Villiöndinni árið 1975, titilhlutverkið í Makbeð ári síðar og aðalhlutverkið í Sölumaður deyr árið 2002. Síðasta hlutverk hans var þjónninn í Kirsuberjagarðinum árið 2011. Pétur var valinn heiðursfélagi Leikfélags Reykjavíkur 2017. Pétur lék einleikinn Býr Íslendingur hér hjá Íslenska leikhúsinu árið 1993 og fór með sýninguna í leikferð til Þýskalands og lék hana á þýsku. Helstu hlutverk hans í sjónvarpi voru Loftur í Galdra-Lofti árið 1970 og Gunnar í Degi vonar árið 1988. Pétur leikstýrði fjölda verkefna meðal annars Poppleiknum Óla, rokkóperunni Súperstar og Lokaæfingu. Pétur var fyrsti skólastjóri Leiklistarskóla Íslands eftir stofnun hans árið 1975. Hann gegndi þeirri stöðu til ársins 1983 og byggði þar upp grunn að leiklistarmenntun á Íslandi, sem fluttist síðar yfir í Listaháskóla Íslands. Hann kenndi leiktúlkun bæði meðan hann var skólastjóri og síðar. Pétur var í leikhúsráði Leikfélags Reykjavíkur, stofnfélagi Félags leikstjóra á Íslandi og formaður þess um tíma, formaður Sambands félaga leikstjóra á Norðurlöndunum, formaður Leiklistarráðs, ritari Leiklistarsambands Íslands og fulltrúi Íslands í stjórn Norræna leiklistarsambandsins. Hann sat um tíma í stjórn Bandalags íslenskra listamanna, Listaháskóla Íslands og Kvikmyndasjóðs auk þess sem hann var fulltrúi Íslands í Norrænu leiklistarnefndinni. Um langt skeið vann Pétur við að hjálpa fólki að hætta að reykja með aðferð Allen Carr´s, The Easy Way to Stop Smoking. Eftirlifandi eiginkona Péturs er Birgitte Heide, listdansari og kennari hjá Listdansskóla Íslands. Pétur lætur eftir sig sex börn og ellefu barnabörn.
Andlát Menning Leikhús Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Fleiri fréttir 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Sjá meira