Golf

Li(v)ðhlauparnir fá að keppa á Opna breska

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Phil Mickelson hefur verið mikið milli tannanna á fólki eftir að hann gekk til liðs við LIV-mótaröðina sem yfirvöld í Sádí-Arabíu kosta.
Phil Mickelson hefur verið mikið milli tannanna á fólki eftir að hann gekk til liðs við LIV-mótaröðina sem yfirvöld í Sádí-Arabíu kosta. getty/Matthew Lewis

Kylfingum sem hafa gengið til liðs við hina afar umdeildu LIV-mótaröð í Sádí-Arabíu verður ekki meinað að keppa á Opna breska meistaramótinu í golfi, fjórða risamóti ársins.

PGA mótaröðin setti þá sautján kylfinga sem tóku þátt á fyrsta móti LIV-mótaraðarinnar í bann. Meðal þeirra voru Bryson DeChambeau, Phil Mickelson og Dustin Johnson.

PGA mótaröðin hefur ekki umsjón með risamótunum og því fengu uppreisnarseggirnir að keppa á Opna bandaríska meistaramótinu í síðustu viku. Og þeir fá að keppa á Opna breska í næsta mánuði. Mótið, sem er það 150. í röðinni, fer fram á St. Andrews í Skotlandi 14.-17. júlí.

Suður-Afríkumaðurinn Charl Schwartzel hrósaði sigri á fyrsta móti LIV-mótaraðarinnar sem var haldið í London fyrr í mánuðinum. Næsta mót fer fram í Portland í byrjun næsta mánaðar.

Bandaríski kylfingurinn Collin Morikawa á titil að verja á Opna breska. Hann hefur þvertekið fyrir það að hann stökkvi frá borði PGA-mótaraðarinnar og í fang LIV-mótaraðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×