Fyrsti skíðadagurinn á Siglufirði í fallegu veðri Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 4. desember 2021 14:36 Fallegt veður er á Siglufirði í dag, eins og víða annars staðar. Talsvert frost og heiðskírt. Aðsend/Skíðasvæðið Siglufirði Skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði opnar í dag í fyrsta sinn í vetur. Forstöðumaður svæðisins segist hafa fundið fyrir mikilli tilhlökkun meðal bæjarbúa og dagurinn sé fullkominn til skíðamennsku.
Mikið frost er víða á landinu í dag en það er í kring um þrjár, fjórar gráður á Siglufirði þessa stundina. Það er heiðskírt fyrir norðan og fallegt um að líta. Egill Rögnvaldsson, forstöðumaður skíðasvæðisins Skarðdals, segir mikinn létti að geta opnað í dag og vonast til þess að veturinn verði góður. „Það er yfirleitt á þessum tíma, 1. til 10. desember, sem við erum að opna. En þetta er mikið fyrr núna en í fyrra, við opnuðum ekki fyrr en um jólin í fyrra þannig að þetta lítur vel út,“ segir Egill. Egill vonast til að fólk nýti sér daginn og mæti í brekkuna.Aðsend/Skíðasvæðið Siglufirði Svæðið opnar klukkan 12, og bara ein lyfta til að byrja með en vel gæti verið að önnur verði opnuð þegar líður á daginn. Egill segist gera ráð fyrir að fjöldi fólks muni sækja í brekkuna. „Það er mikill áhugi fyrir því að koma í fjallið í dag. Ég er búinn að finna fyrir því alla vikuna,“ segir Egill. „Þetta eru náttúrulega búnir að vera skrítnir tveir vetur út af Covid-inu og það eru allir orðnir þyrstir í að komast á skíði.“ Gerir ráð fyrir að geta haft opið á morgun líka Grímuskylda er í kring um afgreiðsluna og skíðaskálann og er fólk beðið um að tryggja að safnast ekki saman í stærri hópum en fimmtíu. Egill segir að í raun gildi bara sömu sóttvarnareglur á skíðasvæðinu og annars staðar. Veðurspáin bendir til að verra veður verði á morgun en í dag og er spáð suðaustan stormi eða hvassviðri. Egill segist þó gera ráð fyrir að geta haldið skíðasvæðinu opnu á morgun líka. „Suðaustanáttin hér á Siglufirði er bara fín. Þannig að ég er bjartsýnn á að verði opið bæði í dag og á morgun,“ segir Egill. „Aðstæður eru mjög góðar í troðnum brekkum. Það er ekki mikill snjór fyrir utan troðnu brekkurnar þannig að fólk verður bara að halda sig í troðnum brekkum og þá verður þetta flott í dag.“ Hann segist feginn því að starfsemi skíðasvæðisins sé komin aftur af stað. „Þetta er búin að vera rosaleg þrautaganga með skíðasvæðin undanfarna tvo vetur, alveg hrikalega erfitt. Við vonum bara að við fáum normal vetur, ég bið ekki um meira. Áttatíu til níutíu dagar opnir og þá erum við góð.“
Skíðasvæði Fjallabyggð Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Fleiri fréttir Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Sjá meira