Farinn frá Everton til Katar

James Rodriguez er farinn frá Everton.
James Rodriguez er farinn frá Everton. AFP

Kólumbíski knattspyrnumaðurinn James Rodriguez er farinn frá Everton fetir tólf mánaða dvöl á Goodison Park og er genginn til liðs við Al Rayyan í Katar.

Kaupverðið var ekki gefið upp en Rodriguez skoraði sex mörk í 26 leikjum í öllum mótum fyrir Everton á siðasta tímabili. Hann hafði hinsvegar ekkert komið við sögu í leikjum liðsins á nýhöfnu tímabili. Everton keypti hann af Real Madrid fyrir 22 milljónir punda síðasta haust.

Rodriguez er þrítugur og lék áður með Bayern München, Mónakó og Porto.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert