Völtuðu yfir erkifjendurna

Bjarki Már Elísson skoraði þrjú mörk i leiknum.
Bjarki Már Elísson skoraði þrjú mörk i leiknum. mbl.is/Hallur Már

Veszprém er komið með annan fótinn í 8-liða úrslit Meistaradeildar karla í handknattleik eftir stórsigur gegn Pick Szeged í fyrri leik liðanna í 12-liða úrslitum keppninnar í Szeged í dag.

Leiknum lauk með 13 marka sigri Veszprém, 36:23, en Bjarki Már Elísson skoraði þrjú mörk fyrir Veszprém í kvöld.

Liðin mætast á nýjan leik fimmtudaginn 30. mars í Veszprém og þarf Pick Szeged á kraftaverki að halda til þess að komast áfram í keppninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka