Hægriöfgaflokkur gæti komist í oddastöðu í Madrid Kjartan Kjartansson skrifar 4. maí 2021 11:13 Grímuklæddir kjósendur bíða fyrir utan kjörstað í Madrid í morgun. Eldri borgarar voru beðnir um að kjósa á tilteknum tíma í morgun. Vísir/EPA Útlit er fyrir að hægriöfgaflokkurinn Vox verði í oddastöðu eftir héraðsþingskosningar í Madrid á Spáni í dag. Flestar kannanir benda til þess að Lýðflokkur núverandi forseta héraðsstjórnarinnar sem hefur amast gegn sóttvarnaraðgerðum landsstjórnarinnar fái flest atkvæði.
Isabel Díaz Ayuso, forseti héraðsstjórnarinnar, boðaði til kosninganna eftir að samsteypustjórn mið- og hægriflokka liðaðist í sundur. Hún hefur markað sér sérstöðu með því að leggjast gegn ströngum sóttvarnaaðgerðum vegna kórónuveirufaraldursins og gagnrýna aðgerðir miðvinstristjórnar Sósíalistaflokksins. Forsetinn hefur þannig haldið veitingahúsum, börum, söfnum og tónleikastöðum opnum í sjálfstjórnarhéraðinu. Í þakkarskyni hafa margir veitingastaðir nefnt rétti og matseðla til heiðurs Díaz Ayuso. Madrid var einn af miðpunktum kórónuveirufaraldursins í heiminum í upphafi hans síðasta vor. Þrátt fyrir að þar búi 14% af íbúum Spánar hafa um 20% kórónuveirusmita og dauðsfalla átt sér stað þar. Kosningabaráttan hefur verið ein sú harðasta á seinni tímum á Spáni og hafa frambjóðendur skipst á gífuryrðum hver um annan, að sögn spænska dagblaðsins El País. Díaz Ayuso hefur lýst kosningunum í ár sem vali á milli „frelsis“ annars vegar og „kommúnisma“ hins vegar. AP-fréttastofan segir að sumar skoðanakannanir bendi til þess að Lýðflokkur Díaz Ayuso gæti náð hreinum meirihluta en flestar þeirra sýni flokkinn með rúmlega 40% atkvæða. Gangi það eftir fengi Lýðflokkurinn um tvöfalt fleiri héraðsþingmenn nú en árið 2019. Líklegast sé að öfgahægriflokkurinn Vox yrði þá í oddastöðu eftir kosningarnar þrátt fyrir að Díaz Ayuso hafi laðað að sér fólk sem hefur kosið flokkinn í undanförnum kosningum. Ólíklegra er talið að flokkar af miðjunni og vinstri vængnum vinni meirihluta í kosningunum. Pablo Iglesias, leiðtogi vinstriflokksins Sameinaðar getum við, lét af ráðherraembætti í landsstjórninni til að bjóða sig fram í héraðskosningunum í Madrid. Andstaða Díaz Ayuso við sóttvarnaaðgerðir hefur aflað henni vinsælda hjá eigendum veitingastaðar í Madrid. Á myndinni af henni í glugga þessa veitingastaðar stendur: „Við erum öll Ayuso. Takk fyrir að passa upp á okkur!“.AP/Bernat Armangue Samstarfsflokkurinn gæti þurrkast út Fram að þessu hefur Lýðflokkurinn, stærsti hægriflokkur Spánar, undir stjórn Pablo Casado reynt að fjarlægja sig öfgahægri þjóðernishyggju Vox. Fari sem horfi gæti Díaz Ayuso aftur á móti þurft að reiða sig á stuðning flokksins til þess að mynda héraðsstjórn. Vox varði héraðsstjórn Lýðflokksins og miðhægriflokksins Borgaranna falli en átti ekki sæti í stjórninni eftir síðustu kosningarnar árið 2019. Díaz Ayuso sleit samstarfi við Borgarana og boðaði til nýrra kosninga eftir að Borgararnir tóku höndum saman við Sósíalistaflokkinn um að leggja fram vantrauststillögur gegn stjórn Lýðflokksins í Murcia-héraði fyrr á þessu ári. Reuters-fréttastofan segir nú útlit fyrir að Borgararnir þurrkist út í héraðsþingskosningunum í Madrid. Sósíalistaflokkurinn, sem stýrir landinu í samstarfi við Sameinaðar getum við, sér fram á missa helming þingflokks síns á héraðsþinginu. Saman virðast vinstri flokkarnir aðeins ætla að ná um 64 af 136 sætum þar. Rocío Monasterio, leiðtogi Vox í Madrid, greiddi atkvæði í morgun. Hún gæti haft örlög héraðsstjórnarinnar í höndum sér þegar úrslitin liggja fyrir.Vísir/EPA Langar raðir og sérstakar ráðstafanir Kosningarnar í dag fara fram með nokkuð óhefðbundnu sniði vegna kórónuveirufaraldursins. Kjörstaðir voru opnaðir klukkan níu að staðartíma og þurfa kjósendur að vera með tvær grímur og gæta að fjarlægðarmörkum. Aðskildir inn- og útgangar eru á kjörstöðum og plastskermar verja starfsmenn kjörstjórnar. Eldra fólk var hvatt til þess að greiða atkvæði á tveggja klukkustunda tímabili um miðjan morgun. Fólk sem er í sóttkví vegna Covid-19 á að koma á kjörstað síðustu klukkustundina sem þeir eru opnir. El País segir að langar raðir hafi myndast við kjörstaði í morgun. Kjörstöðum verður lokað klukkan átta í kvöld að staðartíma en héraðsstjórnin hefur þegar sagt að allir þeir sem eru mættir í röð fyrir þann tíma fái að greiða atkvæði.
Spánn Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Ráðherra fékk hníf með rauðum slettum í pósti Ferðamálaráðherra Spánar fékk hníf með rauðum slettum sendan í pósti en nokkrir stjórnmála- og embættismenn hafa fengið líflátshótanir undanfarna daga. Stjórnmálaflokkar af öllu pólitíska litrófinu hafa fordæmt hótanirnar sem eru til rannsóknar lögreglu. 26. apríl 2021 15:45 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Innlent Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Erlent Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent 300 kröfur um húsleitir og 294 um símahlustun síðustu fimm ár Innlent Fleiri fréttir Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Sjá meira
Ráðherra fékk hníf með rauðum slettum í pósti Ferðamálaráðherra Spánar fékk hníf með rauðum slettum sendan í pósti en nokkrir stjórnmála- og embættismenn hafa fengið líflátshótanir undanfarna daga. Stjórnmálaflokkar af öllu pólitíska litrófinu hafa fordæmt hótanirnar sem eru til rannsóknar lögreglu. 26. apríl 2021 15:45