Skipstjóri sviptur skipstjórnarréttindum vegna siglingar undir áhrifum fíkniefna Árni Sæberg skrifar 18. júní 2021 15:59 Skipstjórinn stýrði skipinu meðal annars inn í Sauðárkrókshöfn undir áhrifum kannabisefna og amfetamínskyldra lyfja. Vísir/Vilhelm Landsréttur staðfesti í dag sakfellingardóm yfir skipstjóra sem gerðist sekur um að stýra fiskiskipi undir áhrifum tetrahýdrókannabínóls og metýlfenídats.
Skipstjóranum var gefið að sök brot á siglingalögum með því að hafa, síðdegis þriðjudaginn 13. nóvember 2018, sem skipstjóri fiskiskips siglt skipinu um Skagafjörð og lagt því við bryggju í Sauðárkrókshöfn, óhæfur til að sinna skipstjórninni á fullnægjandi hátt vegna áhrifa tetrahýdrókannabínóls og metýlfenídats. Fyrrnefnda efnið er virka efnið í kannabis og hið síðarnefnda er örvandi lyf skylt amfetamíni. Skipstjórinn bar fyrir sig við meðferð málsins að hann hafi ekki verið við skipstjórn í umræddri veiðiferð. Yfirstýrimaður hafi stýrt skipinu undir handleiðslu hans enda stóð til að yfirstýrimaðurinn leysti skipstórann af tímabundið. Landsréttur gaf lítið fyrir útskýringar mannsins og lagði til grundvallar að hann hafi verið skipstjóri á fiskiskipinu þegar því var siglt um Skagafjörð og bar hann sem slíkur ábyrgð á stjórn þess. Refsing mannsins var ákveðin 380 þúsund króna sekt sem greiðist í ríkissjóð og svipting skipstjórnarréttinda í þrjá mánuði. Þá greiði skipstjórinn alls 730 þúsund krónur í málskostnað.
Sjávarútvegur Dómsmál Fíkniefnabrot Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Þyrla forsetans sögð fundin Erlent Fleiri fréttir Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Sjá meira