Innlent

Uppsögn í framhaldi af tilkynningu um einelti

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Guðrún Jónsdóttir hefur sakað Þórdísi Sif um einelti.
Guðrún Jónsdóttir hefur sakað Þórdísi Sif um einelti.

Guðrúnu Jónsdóttur, safnstjóra hjá Safnahúsi Borgarfjarðar, hefur verið sagt upp störfum eftir fimmtán ár í starfi. Guðrún greinir frá uppsögninni á Facebook sem hún segir koma í beinu framhaldi af því að hún hafi lagt fram kvörtun um einelti á hendur sveitarstjóranum í Borgarbyggð.

Guðrún greindi frá uppsögninni á Facebook-síðu sinni í morgun. Þar segir hún að Lilja Björg Ágústsdóttir, forseti sveitarstjórnar, hafi tilkynnt henni í gær að sveitarfélagið hyggðist segja henni upp störfum.

„Sú ákvörðun er mér þungbær enda var það gert í kjölfar þess að ég lagði fram eineltiskvörtun á hendur sveitarstjóra vegna óréttmætrar framkomu hennar í minn garð og í kjölfar þess að ég höfðaði dómsmál gegn Borgarbyggð þar sem ég taldi að á mér væri brotinn réttur sem starfsmanni.“

Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveitarstjóri í Borgarbyggð, svarar fyrir ásakanirnar og stingur líkt og Guðrún niður penna á Facebook.

„Undanfarnir dagar hafa verið mér erfiðir. Ég hef verið ásökuð um einelti í starfi mínu sem sveitarstjóri gagnvart starfsmanni. Mér þykir miður að starfsmaðurinn hafi upplifað einelti af minni hálfu. Ég hef það að leiðarljósi, í starfi mínu og lífinu almennt, að gæta jafnræðis, stuðla að góðum samskiptum, taka á vandasömum málum og hreinskilni er mér sérstaklega hugleikin,“ segir Þórdís.

„Framangreindri ásökun um einelti hafna ég alfarið. Ég get eðli máls samkvæmt ekki greint frá málinu í efnisatriðum vegna þagnarskyldu minnar sem sveitarstjóri, en málið er í farvegi þar sem allt er upp borðum.“

Guðrún segist vera sátt við feril sinn í Safnahúsinu, fastasýningum sem hún hafi komið á fót og vakið mikla athygli. Sömuleiðis rafræna skráningu safnkosts og ýmsar aðrar úrbætur á húsinu og faglegri starfsemi þess.

„Ég er stolt af því að hafa staðið með menningararfi Borgfirðinga og nágranna þeirra, varðveislu hans og miðlun þó móti blési, sér í lagi í átökum við embættismenn sem ekki sáu gildi hans fyrir samfélagið.“

Henni sé á þessum tímamótum efst í huga þakklæti til allra þeirra sem hún hafi átt samskipti við í starfi sínu.

„Ég yfirgef þetta skemmtilega og áhugaverða starf með trega en tek með mér margar fallegar minningar. Ekki síst hugsa ég með hlýju og þakkæti til kærra samstarfsmanna og alls þess góða fólks sem ég hef verið svo lánsöm að eiga samskipti við á löngum starfsferli. Nýtt upphaf blasir við hjá mér, en ég óska þess eins að sú merka stofnun sem Safnahús Borgarfjarðar er fái að blómstra áfram sem menningarhús héraðinu öllu til heilla.“


Tengdar fréttir

Sveitarstjóri í Borgarbyggð sver af sér ásakanir um einelti

Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveitarstjóri í Borgarbyggð, hefur verið sökuð um einelti af starfsmanni sveitarfélagsins. Þórdís upplýsir um þetta í Facebook-færslu en hafnar ásökunum. Hún segir málið í farvegi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×