Stöðva stopula leit að olíu í lögsögu Íslands Kristján Már Unnarsson skrifar 29. nóvember 2021 22:20 Rannsóknarskipið Harrier Explorer var það síðasta sem leitaði vísbendinga um olíu í lögsögu Íslands sumarið 2016. Hér er skipið á ytri höfninni í Reykjavík áður en lagt var í leiðangur á Drekasvæðið undir forystu kanadíska félagsins Ithaca. Arnar Halldórsson Hálfrar aldar sögu olíuleitar við Ísland virðist lokið; leitar sem reyndist bæði stopul og árangurslítil. Í nýjum stjórnarsáttmála er því lýst yfir að fleiri leyfi til olíuleitar verði ekki gefin út.
Borað eftir olíu í Flatey á Skjálfanda árið 1982.Orkustofnun Í fréttum Stöðvar 2 var stiklað á stóru í olíuleitarsögu Íslands. Upphafið má rekja til ársins 1971 þegar olíufélagið Shell fékk leyfi til rannsókna á hafsbotninum við landið. Fyrsta borunin var hins vegar við vitann í Flatey á Skjálfanda árið 1982. Það var iðnaðarráðherrann Hjörleifur Guttormsson í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen sem fól Orkustofnun þessa fyrstu olíuborun í sögu landsins. Tveimur árum áður hafði Hjörleifur skipað ráðgjafanefnd til að undirbúa olíuleit við Ísland. Fátt gerðist síðan í olíuleitarmálum fyrr en iðnaðarráðherrann Össur Skarphéðinsson fór um norðausturland árið 2009, kynnti útboð á Drekasvæðinu og boðaði þjónustumiðstöð í Gunnólfsvík við Finnafjörð. Fyrstu olíuvinnsluleyfunum var úthlutað í ráðherratíð Steingríms J. Sigfússonar. Athöfnin fór fram í Ráðherrabústaðnum við Tjörnina í janúar árið 2013. Meðal viðstaddra var olíumálaráðherra Noregs.Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson. Það var svo í ráðherratíð Steingríms J. Sigfússonar sem fyrstu olíuvinnsluleyfunum var úthlutað og í framhaldinu sendu tveir sérleyfishafar rannsóknarskip á Drekasvæðið. Hafinn var undirbúningur þess að senda borskip á svæðið þegar erlendir sérleyfishafar tilkynntu í ársbyrjun 2018 að þeir væru hættir við. Í framhaldinu afturkallaði Orkustofnun síðasta íslenska sérleyfið. Rannsóknarskipið Oceanic Challenger á Reyðarfirði árið 2015 við upphaf leiðangurs sem kínverska ríkisolíufélagið CNOOC leiddi á Drekavæðinu.vísir/egill aðalsteinsson Síðan hefur enginn haft slíkt leyfi og núna hefur ríkisstjórnin kynnt í nýjum stjórnarsáttmála að hún muni ekki gefa út leyfi til olíuleitar í efnahagslögsögu Íslands. Áform um uppbyggingu í Finnafirði gætu þó fengið byr en á öðrum forsendum, því þar er verið að undirbúa græna eldsneytisframleiðslu með vindorku vegna orkuskipta fyrir skipaflotann. Stjórnarsáttmálinn boðar nefnilega stuðning við græna atvinnuuppbyggingu. Hér má sjá frétt Stöðvar 2: Hér má sjá frétt frá 2009 þegar Össur Skarphéðinsson kynnti olíuleitina fyrir íbúum norðausturlands:
Bensín og olía Umhverfismál Loftslagsmál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Langanesbyggð Orkumál Vopnafjörður Orkuskipti Olíuleit á Drekasvæði Tengdar fréttir Áform um stóra vindmyllugarða milli Langaness og Vopnafjarðar Sveitarstjórn Langanesbyggðar skoðar nú hugmyndir um að reisa hátt í þrjúhundruð vindmyllur á sex svæðum milli Langaness og Vopnafjarðar. Rætt er um að allt að eitt þúsund megavött raforku verði virkjuð í vindmyllugörðunum. 20. júlí 2021 23:03 Pólitíska ákvörðun þarf til nýs olíuleitarútboðs Ekkert leyfi til olíuleitar er lengur í gildi í lögsögu Íslands eftir að Eykon hætti við að kæra afturköllun sérleyfis fyrirtækisins á Drekasvæðinu. 7. maí 2018 21:30 Segja líkur á arðbærri olíulind of litlar til að réttlæta frekari leit Norska ríkisolíufélagið Petoro segist sammála því mati hins kínverska CNOOC að líkur á að finna arðbæra olíulind á Drekasvæðinu séu of litlar til að þær réttlæti frekari olíuleit. 26. janúar 2018 19:45 Segir ný gögn um Drekasvæðið grunn að næsta olíuleitarútboði Orkustofnun áætlar að kostnaður við olíuleit á Drekasvæðinu sé kominn yfir fimm milljarða króna, þar af eru fimmhundruð milljónir í leyfisgjöld til ríkisins. 24. janúar 2018 20:00 Þessu skipi er ætlað að finna olíulindir á Drekasvæðinu Olíuleitarskip hélt frá Reykjavík í dag áleiðis á Drekasvæðið til að safna gögnum fyrir kanadíska félagið Ithaca. 12. júní 2016 20:00 Svona grín gera menn ekki, sagði Össur 2009 Þrír ráðherrar Samfylkingarinnar, með Össur Skarphéðinsson í fararbroddi, voru í lykilstöðum við að hrinda af stað olíuleit á Drekasvæðinu. 23. mars 2015 21:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira
Áform um stóra vindmyllugarða milli Langaness og Vopnafjarðar Sveitarstjórn Langanesbyggðar skoðar nú hugmyndir um að reisa hátt í þrjúhundruð vindmyllur á sex svæðum milli Langaness og Vopnafjarðar. Rætt er um að allt að eitt þúsund megavött raforku verði virkjuð í vindmyllugörðunum. 20. júlí 2021 23:03
Pólitíska ákvörðun þarf til nýs olíuleitarútboðs Ekkert leyfi til olíuleitar er lengur í gildi í lögsögu Íslands eftir að Eykon hætti við að kæra afturköllun sérleyfis fyrirtækisins á Drekasvæðinu. 7. maí 2018 21:30
Segja líkur á arðbærri olíulind of litlar til að réttlæta frekari leit Norska ríkisolíufélagið Petoro segist sammála því mati hins kínverska CNOOC að líkur á að finna arðbæra olíulind á Drekasvæðinu séu of litlar til að þær réttlæti frekari olíuleit. 26. janúar 2018 19:45
Segir ný gögn um Drekasvæðið grunn að næsta olíuleitarútboði Orkustofnun áætlar að kostnaður við olíuleit á Drekasvæðinu sé kominn yfir fimm milljarða króna, þar af eru fimmhundruð milljónir í leyfisgjöld til ríkisins. 24. janúar 2018 20:00
Þessu skipi er ætlað að finna olíulindir á Drekasvæðinu Olíuleitarskip hélt frá Reykjavík í dag áleiðis á Drekasvæðið til að safna gögnum fyrir kanadíska félagið Ithaca. 12. júní 2016 20:00
Svona grín gera menn ekki, sagði Össur 2009 Þrír ráðherrar Samfylkingarinnar, með Össur Skarphéðinsson í fararbroddi, voru í lykilstöðum við að hrinda af stað olíuleit á Drekasvæðinu. 23. mars 2015 21:00