Dómsmálaráðherra setur greinargerð um Hjalteyrarmálið í forgang Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 25. nóvember 2021 19:57 Áslaug Arna bindur vonir við að kerfin svari betur ef sambærilegt mál kæmi upp í dag. Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, hyggst setja greinargerð um Hjalteyrarmálið í forgang. Farin verði sú leið að vinna greinargerð um málið, enda hafi lagastoð skort fyrir rannsókn á málinu.
Áslaug Arna segir að ferillinn liggi ekki nákvæmlega fyrir enda óljóst hvort að um vistheimili sé að ræða eða einfaldlega fósturheimili. Það verði því að fara fram nákvæm könnun á málinu innan ráðuneyta. „Þess vegna viljum við setja þetta í þennan farveg. Til að vita hvernig skilgreiningin á þessu heimili í rauninni var. Við erum auðvitað nýbúin að klára mikla vinnu varðandi greiðslu sanngirnisbóta fyrir þá sem urðu varanlega fyrir skaða á stofnunum fyrir fötluð börn,“ segir Áslaug Arna. Ítrekar að tekið verði á málinu Áslaug ítrekar að tekið verði á málinu og sett verði í forgang að finna út hvernig hægt er að svara ákallinu. Það ríki samstaða innan ríkistjórnarinnar og til standi að reyna að komast að niðurstöðu eins fljótt og unnt er. Hún segir miður að heyra að fólk hafi rekist á veggi innan kerfisins. „Við munum auðvitað reyna að flýta þeirri vinnu og það er miður að heyra að fólk hafi reynt og rekist á veggi í kerfinu. Lögin sem til voru um vistheimili, það var ekki heimild í þeim til að kanna aðstæður á einkaheimilum fólks þar sem börn voru vistuð. Það er spurning hvort Hjalteyri falli í einhvern nýjan flokk sem hefur ekki verið brugðist við áður. Þannig að þetta gæti verið stærra verkefni en einungis varðandi þetta tiltekna mál,“ segir Áslaug Arna. Áslaug var í viðtali í Reykjavík síðdegis en viðtalið má heyra í heild sinni hér að neðan.
Barnaheimilið á Hjalteyri Stjórnsýsla Reykjavík síðdegis Vistheimili Hörgársveit Tengdar fréttir „Full ástæða til að fara yfir málefni Hjalteyrarheimilisins“ Forsætisráðherra bendir á að athugasemdir hafi verið gerðar nokkrum sinnum gegnum tíðina við Hjalteyrarheimilið án þess að hjónin þar hafi verið stöðvuð. Hún telur fulla ástæðu til að rannsaka heimilið eftir það sem nú er komið fram. Það sé þó dómsmálaráðuneytið sem ákveði að taka upp slíka rannsókn. 23. nóvember 2021 15:32 „Þetta var hreinasta helvíti“ Maður sem sætti miklu ofbeldi af hálfu hjóna sem ráku barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratug síðustu aldar segir stórundarlegt að hjónin hafi áfram fengið leyfi til að gæta barna í Garðabæ. Foreldrar barna sem voru með börn sín í vistun hjá þeim eru ósáttir við að Garðarbær hafi ekki stöðvað hjónin. 22. nóvember 2021 13:01 Martröðin á barnaheimilinu á Hjalteyri Kynferðislegt, líkamlegt og andlegt ofbeldi tíðkaðist árum saman gagnvart börnum sem dvöldu hjá hjónum sem ráku barnaheimili á Hjalteyri í Hörgársveit á áttunda áratug síðustu aldar. Fólk sem þar var sem börn hefur ítrekað, án árangurs, reynt að ná eyrum yfirvalda til að fá heimilið rannsakað. Prestar sem voru í barnaverndarnefndum á sínum tíma gáfu heimilinu samþykki sitt þrátt fyrir að hafa fengið ábendingar um að þar væri ekki allt með felldu. 21. nóvember 2021 19:56 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Erlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni tókust á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Bein útsending: Bjarkey kynnir lagareldisfrumvarpið Neyðast óvænt til að tæma laugina Bein útsending: Þrjátíu ár af EES-samstarfi Drógu fiskibát sem fékk veiðarfæri í skrúfuna til hafnar Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Stjórn Íslensku óperunnar afar gagnrýnin á frumvarp um Þjóðaróperu Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Sjá meira
„Full ástæða til að fara yfir málefni Hjalteyrarheimilisins“ Forsætisráðherra bendir á að athugasemdir hafi verið gerðar nokkrum sinnum gegnum tíðina við Hjalteyrarheimilið án þess að hjónin þar hafi verið stöðvuð. Hún telur fulla ástæðu til að rannsaka heimilið eftir það sem nú er komið fram. Það sé þó dómsmálaráðuneytið sem ákveði að taka upp slíka rannsókn. 23. nóvember 2021 15:32
„Þetta var hreinasta helvíti“ Maður sem sætti miklu ofbeldi af hálfu hjóna sem ráku barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratug síðustu aldar segir stórundarlegt að hjónin hafi áfram fengið leyfi til að gæta barna í Garðabæ. Foreldrar barna sem voru með börn sín í vistun hjá þeim eru ósáttir við að Garðarbær hafi ekki stöðvað hjónin. 22. nóvember 2021 13:01
Martröðin á barnaheimilinu á Hjalteyri Kynferðislegt, líkamlegt og andlegt ofbeldi tíðkaðist árum saman gagnvart börnum sem dvöldu hjá hjónum sem ráku barnaheimili á Hjalteyri í Hörgársveit á áttunda áratug síðustu aldar. Fólk sem þar var sem börn hefur ítrekað, án árangurs, reynt að ná eyrum yfirvalda til að fá heimilið rannsakað. Prestar sem voru í barnaverndarnefndum á sínum tíma gáfu heimilinu samþykki sitt þrátt fyrir að hafa fengið ábendingar um að þar væri ekki allt með felldu. 21. nóvember 2021 19:56