Beiðnum um leit að börnum og ungmennum fjölgaði í september Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 21. október 2021 20:14 Beiðnum um leit að týndum börnum og unglingum fjölgaði á höfuðborgarsvæðinu í september miðað við mánuðinn á undan. Vísir/Vilhelm Talsverð aukning varð á beiðnum um leit að börnum og ungmennum sem bárust lögreglu í september en mánuðina þrjá á undan. Hegningarlagabrotum fækkaði hins vegar á milli mánaða.
Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir septembermánuð. 808 hegningarlagabrot voru skráð á höfuðborgarsvæðinu í september og fækkaði þeim nokkuð á milli mánaða. Aukning varð þó í einhverjum flokkum, til dæmis fjölgaði tilkynningum um þjófnað sem og tilkynningum um innbrot á milli mánaða. Það sem af er ári hafa borist um níu prósent fleiri tilkynningar um þjófnað en bárust að meðaltali á sama tímabili síðastliðin þrjú ár á undan. Þá bárust alls 106 tilkynningar um ofbeldisbrot í september og beindust níu þeirra að lögreglumönnum. Fleiri slík tilvik hafa ekki verið skráð síðan í maímánuði síðasta árs. Heimilisofbeldistilkynningar voru svipað margar og bárust í ágúst en alls voru 56 tilkynningar um slíkt skráðar í september. Það sem af er ári hafa borist um ellefu prósent fleiri tilkynningar um heimilisofbeldi samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan. Færri umferðarlagabrot en síðustu þrjú ár Alls bárust 21 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í september og fjölgaði þessum beiðnum töluvert miðað við fjölda beiðna síðustu þrjá mánuði á undan. Tilkynningum um eignarspjöll fjölgaði einnig milli mánaða sem og tilkynningum um nytjastuld á vélknúnum ökutækjum. Fíkniefnalagabrotum sem skráð voru hjá lögreglu fjölgaði á milli mánaða og voru þrjú stórfelld fíkniefnabrot skráð í síðasta mánuði hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna voru álíka margar og í ágúst en tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur fjölgaði á milli mánaða. Þá voru 650 umferðarlagabrot skráð hjá lögreglunni, að aðskildum þeim sem náðust á hraðamyndavélum. Það sem af er ári hafa verið skráð um 29 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.
Reykjavík Kópavogur Seltjarnarnes Garðabær Hafnarfjörður Mosfellsbær Lögreglumál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Innlent Vilja endurupptöku í máli Weinstein Erlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Sjá meira