Telja ekki að brunann í Hafnarfirði hafi borið að með saknæmum hætti Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 14. október 2021 11:03 Tæknideild lögreglunnar var að störfum á vettvangi í morgun. Vísir/Vilhelm Kona á sjötugsaldri lést í eldsvoða í miðbæ Hafnarfjarðar í nótt. Eldur kom upp í íbúð hennar rétt fyrir klukkan tvö í nótt og gerðu nágrannar, sem urðu varir við reyklykt, slökkviliði viðvart.
Tveir dælubílar slökkviliðs voru kallaðir út og talsvert lögreglulið en greiðlega gekk að slökkva eldinn að sögn Rúnars Helgasonar, varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. „Það var ekki mikill eldur þegar slökkvilið kom á staðinn en það voru ákveðnar vísbendingar um að hann hafi verið búinn að krauma þarna í einhvern tíma,“ segir Rúnar í samtali við fréttastofu. Eldurinn kom upp í íbúð á miðhæð hússins en barst ekki í aðliggjandi íbúðir.vísir/vilhelm Konan var ein í íbúð sinni en nágrannar hennar voru heima sem tilkynntu eldinn. Talsverður reykur var í íbúðinni en að sögn Rúnars barst hann ekki mikið í aðliggjandi íbúðir. „Það kom smávægilegur reykur inn í aðrar íbúðir en það var ekki mikið.“ En var mikill reykur inni í íbúðinni sem eldurinn kviknaði í? „Já, það var töluverður reykur þar inni,“ segir Rúnar. Málið er nú til rannsóknar hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuborgarsvæðinu og tæknideild lögreglu. Að sögn Margeirs Sveinssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá miðlægri rannsóknardeild, er óvíst hvernig eldurinn kviknaði og hvernig konan lést. Það muni ekki liggja fyrir fyrr en niðurstaða krufningar berist, sem geti tekið nokkra mánuði. Margeir Sveinsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðin, segir ólíklegt að brunann í Hafnarfirði hafi borið að með saknæmum hætti. Kona á sjötugsaldri lést í brunanum. Vísir/Egill „Það er of snemmt að draga einhverjar ályktanir um það eins og er núna. Við erum bara með tæknideildinni að rannsaka vettvang, tala við vitni og ættingja og svona mynda okkur.. en við teljum ekki hins vegar að þetta hafi borið að með saknæmum hætti,“ segir Margeir. Tekið gæti nokkra mánuði að komast að dánarorsök konunnar. „Það er bara krufningin sem leiðir það í ljós sem liggur fyrir á síðari stigum. En það má alveg draga ályktun af því sem gerist að það hafi verið reykeitrun en þetta er bara eitthvað sem krufningsskýrsla kemur til með að skýra út.“ Starfsfólk Rauða krossins veitti sálrænan stuðning á vettvangi og aðstoðaði tvær fjölskyldur við að finna gistingu.
Lögreglumál Slökkvilið Hafnarfjörður Tengdar fréttir Kona lést í eldsvoða í Hafnarfirði í nótt Kona á sjötugsaldri lést í eldsvoða í Hafnarfirði í nótt. 14. október 2021 06:44 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Búast má við slyddu Veður Ný sýn fékk meirihluta Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Frestun verkfalla kemur til greina Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bíll logaði í Vesturbænum Innlent Fleiri fréttir Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Sjá meira
Kona lést í eldsvoða í Hafnarfirði í nótt Kona á sjötugsaldri lést í eldsvoða í Hafnarfirði í nótt. 14. október 2021 06:44