Tottenham neitar að selja Kane næsta sumar og gæti misst hann frítt Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 16. mars 2023 12:01 Hvað gerir Kane í sumar? Getty Images/Richard Sellers Þegar félagaskiptaglugginn á Englandi opnar í sumar verður aðeins ár þangað til samningur framherjans Harry Kane við enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspur rennur út. Hann virðist ekki vera á leiðinni að skrifa undir nýjan samning en það breytir því ekki að Tottenham hefur engan áhuga á að selja sinn besta mann.
Talið er að fjöldi liða muni horfa hýru auga til Kane í sumar. Hann fagnar þrítugs afmæli sínu þann 28. júlí næstkomandi og verður því þann mund að verða 31 árs þegar samningur hans rennur út sumarið 2024. Manchester United hefur lengi vel horft á Kane sem manninn sem getur leidd sóknarlínu liðsins. Hvort Kane sé sama sinnis er annað mál en það er ljóst að Man United getur borgað honum mun hærri laun en Tottenham og þá hefur félagið gert nokkuð nýverið sem Tottenham Kane hefur ekki enn gert á ferli sínum, unnið titil. Sky Sports greinir frá því að Kane sé líklega númer eitt á innkaupalista Man United næsta sumar en félagið þarf þó að standast fjárhagsreglur og því er ekki víst hversu miklu það getur eytt. Það þarf hins vegar nýjan framherja þar sem Wout Weghorst er aðeins á láni og Anthony Martial er einfaldlega meira á nuddbekknum í inniskóm heldur en út á grasi í takkaskóm. Ásamt Kane þá eru Victor Osimhen [Napoli], Gonçalo Ramos [Benfica], Lautaro Martínez [Inter Milan], Dušan Vlahović [Juventus] og Mohammed Kudus [Ajax]. Osimhen at double as Napoli reach first quarter-final — UEFA Champions League (@ChampionsLeague) March 15, 2023 Hvað Kane varðar, ef hann skrifar ekki undir nýjan samning þá getur hann samið við lið utan Englands í janúar á næsta ári. Það er eitthvað sem ríkjandi Þýskalandsmeistarar Bayern München vonast til að gerist. Jamie Carragher, sparkspekingur Sky Sports og fyrrverandi leikmaður Liverpool sem og enska landsliðsins, segir að Man United sé eini raunhæfi möguleikinn fyrir Kane á Englandi fari hann frá Tottenham. Harry Kane hefur skorað 203 mörk í ensku úrvalsdeildinni.Michael Regan/Getty Images „Ég vill ekki sjá hann hjá Man United, af augljósum ástæðum. Ef þú hugsar út í það, Manchester City er með Erling Braut Håland, Liverpool er með Darwin Núñez og hann getur ekki farið til Arsenal.“ Aðspurður hvort hann sjá Kane fyrir sér hjá Bayern: „Hann vill ná markametinu á Englandi. Verði hann í ensku úrvalsdeildinni allt þangað til hann leggur skóna á hilluna þá verður hann markahæsti leikmaður deildarinnar frá upphafi. Það er einstakt afrek.“ Eina leiðin fyrir Kane til að þagga niður í fréttamiðlum er að skrifa undir nýjan samning hjá Tottenham. Sem stendur virðist hann ekki hafa áhuga á því og því verðu forvitnilegt að sjá hvað gerist í sumar.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Íslenski boltinn Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn Körfubolti Freyr nærri kraftaverki: „Þetta var fokking taugatrekkjandi“ Fótbolti Baunað á Brady: „Þín verður ávallt minnst sem tíkar Eli Manning“ Sport Aðeins einum leik frá ótrúlegu meti Fótbolti Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Handbolti Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Enski boltinn Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Enski boltinn Vann mótið fárveikur og fór á sjúkrahús Sport Fleiri fréttir Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Luton mistókst að koma sér úr fallsæti Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Klopp ósáttur við álagið: „Hádegisleikir eru glæpur“ Ten Hag vildi fá Kane í sumar: „Þú veist að hann skorar þrjátíu mörk“ Fékk hrós frá Klopp: Vingjarnlegasti maður sem ég hef hitt Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Sjá meira