Sprengja úr síðari heimsstyrjöld varð tveimur að bana Kjartan Kjartansson skrifar 21. september 2020 13:42 Frá Honiara, höfuðborg Salómonseyja. Vísir/Getty
Tveir sprengjusérfræðingar létust þegar sprengja frá síðari heimsstyrjöldinni sprakk á Salómanseyjum í Kyrrahafi í gær. Mennirnir tveir unnu að því að farga ósprungnum sprengjum á vegum norskra hjálparsamtaka. Sprengjan sprakk í íbúðarhverfi í Honiara, höfuðborg Salómanseyja, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Bretinn Stephen Atkinson og Ástralinn Trent Lee létust en þeir unnu báðir fyrir Aðstoð norsku þjóðarinnar (NPA). Samtökin segja að þeir hafi unnið að smíða gagnagrunns um sprengjuleifar úr síðari heimsstyrjöld en þúsundir ósprunginna sprengna eru sagðar á eyjunum. Harðir bardagar fóru fram á milli Japana og Bandaríkjamanna á Guadalcanal, eyjunni Honiara stendur á. Per Nergård, aðstoðarframkvæmdastjóri NPA, segir að um hörmulegt slys hafi verið að ræða. Rannsóknar sé þörf til að komast að því hvað leiddi til láts mannanna tveggja. AP-fréttastofan hefur eftir lögreglunni á Salómonseyjum að sprengjan hafi sprungið á skrifstofu hjálparsamtakanna í höfuðborginni. Rannsókn standi enn yfir en lögregla telji að mennirnir hafi verið með nokkrar ósprungnar sprengjur á skrifstofunni og hafi mögulega unnið að því að gera þær óvirkar. Unnið er að því að hreinsa upp sprengjuleifar í Honiara í aðdraganda Kyrrahafsleikanna sem stendur til að halda þar árið 2023.
Salómonseyjar Seinni heimsstyrjöldin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leitin enn ekki borið árangur Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Fleiri fréttir Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar Sjá meira