Innlent

Segir miður að fólk með einkenni skuli ekki drífa sig strax í sýnatöku

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Þórólfur Guðnason segir of algengt að fólk sé með flensueinkenni í einhverja daga áður en það fer í sýnatöku. Þrír greindust utan sóttkvíar í gær og segir hann að búast megi við að fleiri muni greinast utan sóttkvíar næstu daga. 
Þórólfur Guðnason segir of algengt að fólk sé með flensueinkenni í einhverja daga áður en það fer í sýnatöku. Þrír greindust utan sóttkvíar í gær og segir hann að búast megi við að fleiri muni greinast utan sóttkvíar næstu daga.  Vísir/Vilhelm

Fjórir greindist með kórónuveiruna innan­lands í gær. Þrír þeirra sem greindust voru utan sóttkvíar. Sóttvarnarlæknir segir að enn sé fólk að greinast sem hefur verið með einkenni úti í samfélaginu áður en það fer sig í sýnatöku. Fleiri gætu því greinst á næstu dögum utan sóttkvíar.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir áhyggjuefni að svo margir greindust utan sóttkvíar í gær.

„Smitin eru öll á höfuðborgarsvæðinu og við getum ekki fundið tengsl við önnur tilfelli. Það segir okkur að veiran er þarna úti í samfélaginu, því miður. Því miður er fólk ennþá með einkenni einhverja daga út í samfélaginu áður en það fer í sýnatöku.  Það er ekki gott og við erum alltaf að reyna að predika að fólk mæti sem fyrst í sýnatöku hafi það einkenni.  Við getum því átt von á því að sjá fleiri tilfelli utan sóttkvíar næstu daga,“ segir Þórólfur.

Virðist ekki tengjast skólum

Hann segir að smitrakning sé nú í gangi en hún þurfi að reiða sig á hvað fólk man um ferðir sínar. 

„Það voru einhverjir tugir sem fóru í sóttkví vegna þessara einstaklinga. Þetta er alltaf háð því hvað fólk man um ferðir sínar og hverja það umgekkst. Þetta virðist ekki tengjast skólum eins og mörg fyrri tilfelli. Við eigum eftir að fá upplýsingar úr raðgreiningu og þá skýrist væntanlega myndin eitthvað frekar,“ segir hann. 

Öll innanlandssmit síðustu vikur hafa verið af breska afbrigði kórónuveirunnar en fram hefur komið að hún er meira smitandi en önnur afbrigði hennar. 

Forðast ónauðsynlegar hópamyndanir

Þórólfur segir að þróunin hafi verið þannig að fleiri komi í sýnatöku þegar samkomutakmarkanir eru hertar og fækki svo þegar létt sé á þeim. Hann brýnir enn og aftur fyrir fólki að fara í sýnatöku hafi það minnstu flensueinkenni.

„Ég hef áhyggjur varðandi framhaldið. En allt er þetta háð því hvernig fólk hegðar sér. Ég bara vona sannarlega að þó að það hafi verið slakað á að fólk forðist allar ónauðsynlegar hópamyndanir. Ég vil hvetja fólk til að koma áfram í sýnatökur það er grundvallaratriði í baráttunni við þennan sjúkdóm,“ segir Þórólfur að lokum. 


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×