Eins og eitthvað úr barnafótbolta

Christian Pulisic í leik með Bandaríkjunum gegn Hollandi á HM …
Christian Pulisic í leik með Bandaríkjunum gegn Hollandi á HM 2022 í Katar. AFP/Alberto Pizzoli

Christian Pulisic, leikmaður Chelsea og bandaríska landsliðsins í knattspyrnu, telur deilur þjálfarans Gregg Berhalter og fjölskyldu Gio Reyna, leikmanns Borussia Dortmund og landsliðsins, hafa verið barnalega.

Berhalter, sem stýrði Bandaríkjunum á HM 2022 í Katar, hefur sætt rannsókn knattspyrnusambands Bandaríkjanna eftir að foreldrar leikmannsins Gio Reyna, fyrrverandi knattspyrnufólkið Claudio og Danielle, tilkynntu sambandinu að Berhalter hafi árið 1991 ráðist á eiginkonu sína, Rosalind.

Aðdragandinn að þeirri tilkynningu var sá að Berhalter fullyrti á blaðamannafundi þegar HM stóð yfir að einn leikmaður Bandaríkjanna hafi verið ná­lægt því að vera send­ur heim vegna lé­legs hugar­fars þar sem hlutverk leikmannsins hjá liðinu væri minna en hann vildi.

Ekki leið á löngu þar til ljóstrað var upp um að Gio Reyna væri sá leikmaður. Gio var líkt og foreldrar sínir ósáttur við að málið hafi ratað í fjölmiðla.

„Allt sem hefur átt sér stað með Gregg hefur fyrir það fyrsta verið meðhöndlað á mjög barnalegan hátt. Mér finnst þetta barnalegt.

Þetta er eins og í barnafótbolta, fólk að kvarta yfir spiltíma. Ég vil ekki kafa of djúpt í þetta en ég segi þetta að minnsta kosti,“ sagði Pulisic í samtali við ESPN.

Samningur Berhalters rann út að loknu heimsmeistaramótinu og verður hann ekki áfram landsliðsþjálfari.

„Ég tel að Gregg hafi verið gríðarlega óheppinn að lenda í þeirri stöðu sem hann er nú í,“ bætti Pulisic við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert