Söguleg skýring á óheppilegri staðsetningu hausaþurrkunar Samherja Bjarki Sigurðsson skrifar 5. desember 2022 10:34 Höfðstöðvar Samherja á Dalvík að Ránarbraut. Fyrir liggur að staðsetning hausaþurrkunar Samherja á Dalvík er óheppileg og krefjandi vegna nálægðar við íbúðarbyggð. Sögulegar skýringar eru á staðsetningunni. Samherji hefur tekið ráðstafanir til að minnka lykt frá þurrkuninni.
Þetta kemur fram í svarbréfi starfsmanna framkvæmdasviðs Dalvíkurbyggðar og Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra (HNE). Svarbréfið var gert eftir kvörtun Kristjáns Vigfússonar undan megnri ólykt frá þurrkuninni. Meðal þess sem Kristján kvartaði yfir var að lyktin skerði loftgæði og lífsgæði íbúa Dalvíkur. Hausaþurrkunin er staðsett við Ránarbraut, nálægt höfninni í norðurhluta bæjarins. Kristján lagði fram fimmtán spurningar sem hann óskaði eftir því að bæjarstjóri myndi svara. Í svörum Dalvíkurbyggðar segir að HNE hafi gert kröfur um ráðstafanir til að draga úr lyktarmengun frá hausaþurrkuninni og að Samherji hafi brugðist við þeim. Meðal þess sem fyrirtækið hefur gert til að draga úr lykt er að bæta verkferla ferskleika hráefnis, bætt vinnuferla og tekið í notkun búnað sem dregur úr lykt. Kristján spyr hvort það hafi eitthvað verið rætt hvort staðsetning lyktarmengandi starfsemi sé viðeigandi fyrir íbúa í næsta nágrenni. Í svarinu segir að það liggi fyrir að staðsetning hausaþurrkunarinnar sé óheppileg og krefjandi vegna nálægðar við íbúðabyggð. Í samtali við Vísi fyrr á árinu lýsti einn íbúi Dalvíkur lyktinni þannig að hún væri svipuð og ef einhver myndi drepa fisk og geyma hann undir sófanum sínum í hálfan mánuð. Þá séu sögulegar skýringar á nálægðinni, að um sé að ræða hafnsækna starfsemi og uppbyggingu íbúðabyggðar sem hefur átt sér stað yfir langan tíma. Lyktin sem kemur frá hausaþurrkuninni stigmagnast við einstaka bilanir eða frávik í starfsemi þar. Samherji er með eigin viðbragðsáætlun sem fer í gang við bilun. Lyktin er metin fyrst og fremst með lyktarskyni eftirlitsmanna en einnig er horft til upplifunar almennings. Þá eru til mælikvarðar fyrir ferskleika hráefnisins sem HNE notast við. Ekki er haldið utan um lyktarútbreiðslu með tölvulíkani þar sem sveitarfélagið gerir ekki kröfu til þess. Tengd skjöl Svar_við_kvörtun_á_DalvíkPDF196KBSækja skjal
Dalvíkurbyggð Sjávarútvegur Loftgæði Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Óljóst hvort þyrlan sé fundin Erlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Fleiri fréttir Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Sjá meira