Trúlofuð sex árum eftir lát unnusta síns

Leikkonan Michelle Dockery.
Leikkonan Michelle Dockery. AFP

Downton Abbey-leikkonan Michelle Dockery er trúlofuð Jasper Waller-Bridge. Sex ár eru síðan að unnusti Dockery, John Dineen, féll frá. Stjörnuparið greindi frá trúlofuninni í The Times að því fram kemur á vef Hello. 

Hin fertuga Dockery og hinn 34 ára gamli Waller-Bridge eru talin hafa kynnst í gegnum sameiginlega vini árið 2019. Waller-Bridge er bróðir Phoebe Waller-Bridge úr hinum vinsælu Fleabag þáttum. 

Dockery missti unnusta sinn í desember árið 2015 eftir baráttu við krabbamein aðeins 34 ára. Þó svo þau hefðu ekki verið gift leit hún á sig sem ekkju. „Við vor­um trú­lofuð og gift innst inni svo ég tel mig vera ekkju,“ sagði hún í viðtali fyrir nokkrum árum. 

Michelle Dockery í hlutverki Lady Mary Crawley.
Michelle Dockery í hlutverki Lady Mary Crawley. Stilla úr Downton Abbey
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson