Telur sig heppna að vera á lífi eftir að hafa misst aleiguna í eldsvoða Kristín Ólafsdóttir skrifar 19. júní 2021 18:59 Kolbrún hefur verið búsett í New York í átta ár. Fjallað var um eldsvoðann, sem lagði íbúð hennar í rúst, í öllum helstu staðarmiðlum fyrr í vikunni. Samsett Íslensk kona búsett í New York segist heppin að vera á lífi eftir að hún missti aleiguna í eldsvoða aðfaranótt sautjánda júní.
Kolbrún Ýrr Rolandsdóttir hefur verið búsett í New York í átta ár. Eldurinn, sem rataði í alla helstu staðarmiðla, kviknaði í íbúð nágranna hennar í Hell's Kitchen-hverfinu á Manhattan seint á miðvikudagskvöld. Kolbrún segir mikið vesen hafa verið á manninum í aðdraganda eldsvoðans en talið er að kviknað hafi í út frá rafmagni sem nágranninn fór óvarlega með. Kolbrún gisti ekki heima hjá sér hina örlagaríku nótt af ótta við nágrannann. „Núna er ekki einu sinni veggur milli íbuðanna okkar og þakið í rauninni bara féll á rúmið mitt og gluggarnir splúndruðust, það kviknaði í öllu. Ég talaði við slökkviliðsmennina og þeir höfðu ekki séð svona slæman eld í langan tíma,“ segir Kolbrún. Húsvörður í byggingunni tók þessar myndir fyrir Kolbrúnu, sem ekki hefur fengið að fara inn í íbúðina síðan bruninn varð.Aðsend „Og það er bara gat á gólfinu og það er allt úti um allt, spýtur og rústir. Þetta eru bara brunarústir, þú þarft að fara þarna í sérstökum búning með stáltá.“ Kolbrún, sem dvelur nú á hóteli fyrir tilstilli Rauða krossins, segist hafa fengið þau skilaboð að hún muni aldrei snúa aftur í íbúðina. „Ef ég hefði verið heima hefðu þeir örugglega ekki getað brotið upp hurðina mína og ég er bara þakklát fyrir að vera á lífi og ekki heima sofandi því það hefði getað endað mjög illa.“ Rjúfa þurfti loftið á íbúðinni. Í fyrsta sinn sem hana langar heim til mömmu Tjónið sé gríðarlegt og áfallið mikið. Í eldsvoðanum tapaði Kolbrún meðal annars ýmsum erfðagripum sem henni voru kærir. „Ég á föt frá báðum ömmum mínum, pels og þú getur ímyndað þér það sem maður er búinn að vera að sanka að sér í átta ár. Og ég var nýbúin að stofna þetta heimili og ég var stolt af því.“ Það sé ómetanlegt að finna fyrir stuðningi vina og vandamanna en tilfinningin að upplifa slíkan missi sé óraunveruleg. Mörg áföll hafi dunið yfir hana síðustu mánuði, af heilsufars- og persónulegum toga, að viðbættum heimsfaraldri kórónuveirunnar. „En þetta er í fyrsta skipti sem ég er bara: Veistu það að nú er nú komið gott, nú vil ég bara fara heim til mömmu,“ segir Kolbrún. Vinir Kolbrúnar hafa hrundið af stað söfnun til að létta undir með henni eftir eldsvoðann. Þeir sem vilja leggja söfnuninni lið geta lagt inn á reikning 0536-26-3597, kt. 120387-2439. Fleiri myndir innan úr íbúð Kolbrúnar má sjá hér fyrir neðan.
Bandaríkin Íslendingar erlendis Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Innlent Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Innlent Útimarkaðurinn í Mosó hættir Innlent Fleiri fréttir Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka Sjá meira