Hissa á að teljast eigandi landareignar sem sögð er keypt fyrir fé frá Samherja Andri Eysteinsson skrifar 10. júlí 2020 11:41 Bernhard Esau, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Namibíu. Twitter/The Namibian
Bernhard Esau, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Namibíu sem er einn þeirra sem nefndur var í Samherjaskjölunum sagðist hafa verið steinhissa þegar hann komst að því að landareign á Otjiwarongo svæðinu í Namibíu væri í hans eigu. Þetta kom fram í vitnaleiðslum í málinu gegn Esau í Windhoek í dag. Einn aðalrannsakenda nefndar sem rannsakar spillingu í Afríkuríkinu, Karl Cloete, bar vitni í dag og fjallaði þar um kaup Esau á landareign og sagði hana keypta fyrir fjármuni sem Esau fékk frá Samherja. Cloete sagði að Esau og eiginkona hans, Swamma Esau, hafi samið um að kaupa landareign í nóvember 2017. Kaupverðið var 1.7 milljónir namibíudala og skrifuðu bæði Esau og eiginkona hans undir kaupsamninginn. Cloete sagði í vitnisburði sínum að peningarnir hafi komist til Esau frá Samherja í gegnum lögfræðistofuna De Klerk, Horn & Coetzee. Verjandi ráðherrans fyrrverandi, Richard Metcalfe, sagði að Esau hafi ásamt eiginkonu sinni fundað með lögfræðingnum Maren De Klerk til þess að setja upp erfðaskrá eftir að Sacky Shanghala hefði mælt með De Klerk. Þar hafi De Klerk spurt Esau hvort hann hefði áhuga á að kaupa land í Otjiwarongo en Esau hafi ekki haft efni á slíkri fjárfestingu. Metcalfe sagði að skjólstæðingur sinn hafi skrifað undir stofnsamnings fyrirtækisins sem eignaðist landareignina en hafi verið steinhissa þegar hann frétti að landareignin teldist til eigna sinna. Sjávarútvegsráðherrann fyrrverandi hafði ekki tilgreint landareignina í Otjiwarongo þegar þess var krafist af honum fyrir upphaf réttarhaldanna að gera skilmerkilega grein fyrir eignum sínum. Metcalfe sýndi fyrir dómstólnum tölvupóstsamskipti sem hann sagði að sýndu að hvorki Bernhard né Swamma Esau hafi verið látin vita af því að landareignin yrði skráð á hjónin. Namibian Sun greinir frá því að Esau hafi sagst ekki hafa nein not fyrir landareignina og hafi boðist til þess að gefa hana eftir og láta hana renna til ríkisins. Þá var réttarhöldunum frestað til 21. júlí. Áætlað er að þar muni verjendur og saksóknarar flytja lokaávörp sín. Dómarinn Duard Kesslau segist telja að niðurstaða verði komin í málið degi síðar og verði þá ákvarðað hvort Esau og tengdasonur hans Tamson „Fitty“ Hatuikulipi verði leystir úr haldi gegn tryggingu.
Samherjaskjölin Namibía Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Erlent Pétur Einarsson leikari látinn Innlent Fleiri fréttir Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Sjá meira