Rammagerðin opnar í Kringlunni

Rammgerðin opnar í Kringlunni.
Rammgerðin opnar í Kringlunni. Ljósmynd/Aðsend

Rammagerðin hefur opnað nýja verslun í Kringlunni. Í tilkynningu er verslunin sögð sú fyrsta í Kringlunni sem bjóði eingöngu upp á íslenska gjafavöru. Í versluninni er að finna vörur frá tæplega 50 íslenskum hönnuðum og vörumerkjum.

Rammagerðin var stofnuð árið 1940 og rekur í dag fimm verslanir sem bjóða íslenska hönnun og handverk. Fischer Ilmhús, Bjarni Viðar, Scintilla, Havarí, Bahns, Milla Snorrason og Ragna Ragnarsdóttir eru meðal þeirra hönnuða og vörumerkja sem er að finna í nýju verslun Rammagerðarinnar í Kringlunni.

„Það eru spennandi tímar fram undan í skapandi greinum og spurn eftir íslenskri hönnun og handverki er stöðugt að aukast. Nýja verslunin í Kringlunni er komin til að mæta þessum aukna áhuga á íslenskri hönnun,“ er haft eftir Bjarneyju Harðardóttur, eiganda Rammagerðarinnar, í tilkynningu.

Auður Gná Ingvarsdóttir, listrænn stjórnandi Rammagerðarinnar, hafði veg og vanda af því að velja inn réttu vörurnar og sá sömuleiðis um uppsetningu og framstillingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK