Innlent

Landspítalinn bíður einnig eftir svörum

Birgir Olgeirsson skrifar
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Landspítalans.
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Landspítalans. Vísir/Egill

Sóttvarnalæknir er ekki eini sem bíður eftir svörum frá Landspítalanum. Forstjóri spítalans segist sjálf þurfa svör við ákveðnum spurningum áður en næstu skref verða tekin.

Forstjóri Landspítalans segir sjúkrahúsið ágætlega í stakk búið til að takast á við faraldurinn í þeirri mynd sem hann er í dag. Öðru máli gegnir ef ráðast á í afléttingar.

„Hvað varðar Landspítala þá þurfum við í fyrsta lagi að athuga hvaða getu Landspítalinn hefur til að greina sýni og í öðru lagi hvað Covid-göngudeildin getur annað. Síðan kannski legurýmin og ekki síst gjörgæslan. Allir þessir þættir það er bæði sýnatakan, Covid-göngudeildin og legurýmin kalla á ákveðinn mannskap og það er kannski þar sem að skóinn kreppir, segir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Landspítalans.

Hún segir stjórnvöld hafa tekið vel í allar umleitanir spítalans hingað til í gegnum faraldurinn. Stærsti vandinn í gegnum faraldurinn hafi verið að láta aðra þjónustu víkja fyrir Covid verkefnum.

„Við höfum þurft að loka A7 sem er smitsjúkdómadeildin okkar fyrir öðrum innlögnum. Það hefur kallað á mjög miklar aðgerðir af okkar hálfu til þess að láta hlutina ganga upp,“ segir Guðlaug Rakel.



Hún mun eiga fund með sóttvarnalækni um stöðuna á föstudag. Hún telur sóttvarnalækni ekki setja Landspítalann í erfiða stöðu með því að setja ábyrgðina á stjórnendur hans að svara spurningunni hvað spítalinn ráði við mikið, en hingað til hefur svar við þeirri spurningu ekki fengist.

„Mér finnst þetta bara eðlilegt samtal og við munum eiga það og við komumst að niðurstöðu,“ segir Guðlaug Rakel.


Tengdar fréttir

Skipti gríðarlegu máli að ekki sé opið í bænum fram á nótt

Sóttvarnalæknir segir Landspítalann þurfa svara því hvort hann sé í stakk búinn til að bregðast við auknum fjölda smita ef aðgerðum verður aflétt innanlands. Þetta segir hann í ljósi minnisblaðs forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra þar sem litið er til Norðurlanda sem hafa aflétt öllum sínum aðgerðum.

Ríkis­stjórnin sögð leggja drög að til­slökunum

Í minnisblaði sem forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra hafa lagt fyrir ríkisstjórnina, og fjallar um framtíðarhorfur kórónuveirufaraldursins hér á landi, segir að hættan á óviðráðanlegum faraldri hafi minnkað. Stefnt sé að minni takmörkunum og unnið sé að drögum um slíkar áætlanir.

Tveir af þremur sem létust í ágúst voru erlendir ferðamenn

Þrír hafa látist á Íslandi frá 1. ágúst vegna Covid-19. Tveir þeirra voru erlendir ferðamenn og einn þeirra Íslendingur. Þetta kemur fram í minnisblaði forsætis- og heilbrigðisráðherra sem lagt var fram á fundi ríkisstjórnarinnar í gær.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×