Simeone: Mótherjar okkar eru hræddir við Suarez Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. febrúar 2021 12:06 Luis Suarez fagnar hér marki fyrir Atletico Madrid en hann er þegar kominn með sextán mörk á leiktíðinni. Getty/Denis Doyle Diego Simeone, knattspyrnustjóri Atletico Madrid, er sannfærður um að Luis Suarez geri leikmönnum Chelsea lífið leitt þegar liðin mætast i sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Fyrri leikurinn er í kvöld. Barcelona losaði sig við Luis Suarez fyrir þetta tímabil en Úrúgvæmaðurinn hefur sýnt öllum hversu stór mistök það voru að afskrifa þennan öfluga framherja. Hann er vissulega orðinn 34 ára gamall en hefur verið skotskónum í vetur. Suarez samdi við Atletico Madrid og hefur þegar skoraði 16 mörk í 24 leikjum í öllum keppnum á sínu fyrsta tímabili með félaginu. Atletico er á toppnum í spænsku deildinni og fær nú möguleika til að slá Chelsea út úr Meistaradeildinni. Simeone on Chelsea: Suarez can strike fear in any foe https://t.co/EIMT6WjHg3— Red Bun Football (@RBFutbolTweets) February 23, 2021 „Mótherjar okkar hræðast Luis og þá skiptir það engu máli hvaða keppni það er,“ sagði Diego Simeone á blaðamannafundi fyrir leikinn á móti Chelsea. „Hann hefur hæfileika og gæði sem allir mótherjar taka eftir. Við skulum ræða vandamál hans að skora á útivelli þegar við komum til London en við erum á heimavelli á morgun,“ sagði Simeone. Það er reyndar ekki hundrað prósent rétt því þótt að þetta sé heimaleikur spænska liðsins þá er leikurinn spilaður í Rúmeníu. Blaðamenn höfðu þá spurt Diego Simeone út í þá staðreynd að Luis Suarez hafi ekki skorað á útivelli í Meistaradeildinni síðan árið 2015. Diego Simeone places faith in Luis Suárez to use his 'gift' against Chelsea https://t.co/v1UN2uuyEX— The Guardian (@guardian) February 22, 2021 Þar sem Spánn bannar komu fólks frá Bretlandi vegna útbreiðslu nýja breska afbrigðisins af kórónuveirunni þá varð að færa leikinn frá Madríd til Búkarest. Suarez hefur skorað öll sextán mörk tímabilsins í spænsku deildinni og á því enn eftir að skora í Meistaradeildinni á þessari leiktíð. Luis Suarez hefur skorað 26 mörk í 64 Meistaradeildarleikjum á ferlinum. Síðasta mark hans í Meistaradeildinni kom á móti Bayern München í átta liða úrslitunum í fyrra en hann skoraði 5 mörk í 7 leikjum með Barcelona í keppninni á síðustu leiktíð. Leikur Atletico Madrid og Chelsea hefst klukkan 20.00 í kvöld en bein útsending á Stöð 2 Sport 2 hefst klukkan 19.50. Upphitun fyrir Meistaradeildarleiki kvöldsins hefst klukkan 19.15 á Stöð 2 Sport 2 en leikur Lazio og Bayern München verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 4 frá klukkan 19.50. Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Meistaradeild Evrópu Mest lesið Rashford líka skilinn eftir heima Enski boltinn Scottie Scheffler fer fyrir dómstóla í byrjun júní Golf Sara Björk ekki áfram hjá Juventus Fótbolti Kaupstefna Brighton ástæðan fyrir brotthvarfi De Zerbi Enski boltinn „Mér finnst ég vera besti leikmaðurinn á Íslandi“ Körfubolti Hundahvíslarinn sem bræddi hjörtu Kansasbúa Sport Sjáðu umdeilda vítið sem KR fékk og öll mörkin úr Bestu í gær Íslenski boltinn Löðrungaði son sinn fyrir að gera lítið úr Juventus Fótbolti Anníe Mist: Hver veit hvar ég verð eftir eitt ár Sport Pochettino farinn frá Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir Tvenna Orra Steins dugði ekki og titilvonir FCK úr sögunni Í beinni: Fram - ÍA | Skora Skagamenn hjá bestu vörninni? Í beinni: Breiðablik - Stjarnan | Blikar geta minnkað forskot Víkinga Í beinni: HK - Valur | Valsmenn reyna að stöðva sigurgöngu HK Pochettino farinn frá Chelsea Býst við að Sveindís Jane sé klár fyrir leikina mikilvægu Benítez ráðleggur Slot fyrir komuna til Liverpool Fyrrum besta knattspyrnukona heims framlengir við Barcelona Mo Salah ætlar að vinna titla með Liverpool á næstu leiktíð Valsmenn hafa unnið alla deildarleiki sína við HK frá hruni Ráðherrar reiðir út í leikmann í frönsku deildinni Sara Björk ekki áfram hjá Juventus Rashford líka skilinn eftir heima Tveir leikir á Akureyri og bikarmeistararnir lentu á móti Fylki Sagður vera búinn að henda Henderson út úr enska landsliðinu Löðrungaði son sinn fyrir að gera lítið úr Juventus Toni Kroos hættir eftir EM í sumar Eigendur Inter í fjárhagskröggum og við það að missa félagið frá sér Sjáðu umdeilda vítið sem KR fékk og öll mörkin úr Bestu í gær Kaupstefna Brighton ástæðan fyrir brotthvarfi De Zerbi Völdu Albert í lið ársins Tuchel daðrar við Man United og Chelsea Juventus skoraði þrjú á átta mínútum og bjargaði stigi Tel að ég geti hjálpað liðinu að ná í fleiri sigra Uppgjör og viðtöl: KA-Fylkir 4-2 | Fyrsti sigur Akureyringa í hús „Okkar langar rosalega að klífa upp töfluna“ Hlín á skotskónum og Guðrún vann toppslaginn Uppgjör, viðtöl og myndir: FH-KR 1-2 | KR-ingar á sigurbraut eftir hark í Hafnafirði Sverrir Ingi á skotskónum í ótrúlegum leik Liverpool staðfestir komu Slot Sjá meira
Barcelona losaði sig við Luis Suarez fyrir þetta tímabil en Úrúgvæmaðurinn hefur sýnt öllum hversu stór mistök það voru að afskrifa þennan öfluga framherja. Hann er vissulega orðinn 34 ára gamall en hefur verið skotskónum í vetur. Suarez samdi við Atletico Madrid og hefur þegar skoraði 16 mörk í 24 leikjum í öllum keppnum á sínu fyrsta tímabili með félaginu. Atletico er á toppnum í spænsku deildinni og fær nú möguleika til að slá Chelsea út úr Meistaradeildinni. Simeone on Chelsea: Suarez can strike fear in any foe https://t.co/EIMT6WjHg3— Red Bun Football (@RBFutbolTweets) February 23, 2021 „Mótherjar okkar hræðast Luis og þá skiptir það engu máli hvaða keppni það er,“ sagði Diego Simeone á blaðamannafundi fyrir leikinn á móti Chelsea. „Hann hefur hæfileika og gæði sem allir mótherjar taka eftir. Við skulum ræða vandamál hans að skora á útivelli þegar við komum til London en við erum á heimavelli á morgun,“ sagði Simeone. Það er reyndar ekki hundrað prósent rétt því þótt að þetta sé heimaleikur spænska liðsins þá er leikurinn spilaður í Rúmeníu. Blaðamenn höfðu þá spurt Diego Simeone út í þá staðreynd að Luis Suarez hafi ekki skorað á útivelli í Meistaradeildinni síðan árið 2015. Diego Simeone places faith in Luis Suárez to use his 'gift' against Chelsea https://t.co/v1UN2uuyEX— The Guardian (@guardian) February 22, 2021 Þar sem Spánn bannar komu fólks frá Bretlandi vegna útbreiðslu nýja breska afbrigðisins af kórónuveirunni þá varð að færa leikinn frá Madríd til Búkarest. Suarez hefur skorað öll sextán mörk tímabilsins í spænsku deildinni og á því enn eftir að skora í Meistaradeildinni á þessari leiktíð. Luis Suarez hefur skorað 26 mörk í 64 Meistaradeildarleikjum á ferlinum. Síðasta mark hans í Meistaradeildinni kom á móti Bayern München í átta liða úrslitunum í fyrra en hann skoraði 5 mörk í 7 leikjum með Barcelona í keppninni á síðustu leiktíð. Leikur Atletico Madrid og Chelsea hefst klukkan 20.00 í kvöld en bein útsending á Stöð 2 Sport 2 hefst klukkan 19.50. Upphitun fyrir Meistaradeildarleiki kvöldsins hefst klukkan 19.15 á Stöð 2 Sport 2 en leikur Lazio og Bayern München verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 4 frá klukkan 19.50. Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Rashford líka skilinn eftir heima Enski boltinn Scottie Scheffler fer fyrir dómstóla í byrjun júní Golf Sara Björk ekki áfram hjá Juventus Fótbolti Kaupstefna Brighton ástæðan fyrir brotthvarfi De Zerbi Enski boltinn „Mér finnst ég vera besti leikmaðurinn á Íslandi“ Körfubolti Hundahvíslarinn sem bræddi hjörtu Kansasbúa Sport Sjáðu umdeilda vítið sem KR fékk og öll mörkin úr Bestu í gær Íslenski boltinn Löðrungaði son sinn fyrir að gera lítið úr Juventus Fótbolti Anníe Mist: Hver veit hvar ég verð eftir eitt ár Sport Pochettino farinn frá Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir Tvenna Orra Steins dugði ekki og titilvonir FCK úr sögunni Í beinni: Fram - ÍA | Skora Skagamenn hjá bestu vörninni? Í beinni: Breiðablik - Stjarnan | Blikar geta minnkað forskot Víkinga Í beinni: HK - Valur | Valsmenn reyna að stöðva sigurgöngu HK Pochettino farinn frá Chelsea Býst við að Sveindís Jane sé klár fyrir leikina mikilvægu Benítez ráðleggur Slot fyrir komuna til Liverpool Fyrrum besta knattspyrnukona heims framlengir við Barcelona Mo Salah ætlar að vinna titla með Liverpool á næstu leiktíð Valsmenn hafa unnið alla deildarleiki sína við HK frá hruni Ráðherrar reiðir út í leikmann í frönsku deildinni Sara Björk ekki áfram hjá Juventus Rashford líka skilinn eftir heima Tveir leikir á Akureyri og bikarmeistararnir lentu á móti Fylki Sagður vera búinn að henda Henderson út úr enska landsliðinu Löðrungaði son sinn fyrir að gera lítið úr Juventus Toni Kroos hættir eftir EM í sumar Eigendur Inter í fjárhagskröggum og við það að missa félagið frá sér Sjáðu umdeilda vítið sem KR fékk og öll mörkin úr Bestu í gær Kaupstefna Brighton ástæðan fyrir brotthvarfi De Zerbi Völdu Albert í lið ársins Tuchel daðrar við Man United og Chelsea Juventus skoraði þrjú á átta mínútum og bjargaði stigi Tel að ég geti hjálpað liðinu að ná í fleiri sigra Uppgjör og viðtöl: KA-Fylkir 4-2 | Fyrsti sigur Akureyringa í hús „Okkar langar rosalega að klífa upp töfluna“ Hlín á skotskónum og Guðrún vann toppslaginn Uppgjör, viðtöl og myndir: FH-KR 1-2 | KR-ingar á sigurbraut eftir hark í Hafnafirði Sverrir Ingi á skotskónum í ótrúlegum leik Liverpool staðfestir komu Slot Sjá meira