Samkeppniseftirlitið heimilar samruna Kviku, TM og Lykils Eiður Þór Árnason skrifar 1. mars 2021 12:49 Stjórnir fyrirtækjanna samþykktu að sameina félögin í lok nóvember. Vísir/Rakel Samkeppniseftirlitið hefur gefið grænt ljós á samruna Kviku banka, tryggingafélagsins TM og Lykils fjármögnunar. Er það mat eftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni, leiði til myndunar á markaðsráðandi stöðu eða raski samkeppni með umtalsverðum hætti.
Stjórnir fyrirtækjanna samþykktu í lok nóvember að sameina félögin eftir nokkrar viðræður. Á föstudag tilkynnti Fjármálaeftirlitið Kviku þá niðurstöðu sína að eftirlitið teldi félagið hæft til að fara með eignarhald á virkum eignarhlut í dótturfélögum TM. Enn á eftir að uppfylla fyrirvara um samþykki Fjármálaeftirlitsins fyrir samruna fyrirtækjanna og samþykki hluthafa á aðalfundum félaganna áður en samruninn nær fram að ganga. Fram kemur í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins að að fyrirtækin starfi aðeins að litlu leyti á sömu mörkuðum, geti ekki talist nánir keppinautar og séu minni en ýmsir helstu keppinautar þeirra. „Sú lítillega aukna samþjöppun á sviði lánastarfsemi sem samruninn leiðir af sér er ekki líkleg til þess að raska samkeppni þar sem annars vegar starfa samrunaaðilar á mismunandi undirmörkuðum lánamarkaðar og hins vegar etja þeir kappi við nokkra mun stærri keppinauta á lánamarkaði. Lárétt áhrif samrunans eru því mjög takmörkuð. Ekki fæst heldur séð að samruninn sé til þess fallinn að stuðla að eða auka hættu á samhæfðri hegðun á lánamarkaði, vátryggingamarkaði né öðrum mörkuðum þar sem hið sameinaða félag starfar,“ segir í ákvörðun eftirlitsins. TM og Lykill renna inn í Kviku Að sögn fyrirtækjanna fer samruninn fram með þeim hætti að TM og Lykli verður slitið og félögin sameinuð Kviku. Þá fái hluthafar TM hluti í Kviku í skiptum fyrir hluti sína í TM en hlutabréf Lykils falla úr gildi við samrunann. TM lauk kaupum á Lykli í byrjun síðasta árs. Í kjölfar samrunans verður vátryggingastarfsemi samstæðunnar í tveimur dótturfélögum Kviku, TM tryggingum hf. og TM líftryggingum hf. Sjá fram á mikla kostnaðarsamlegð „Sameinað félag verður fjárhagslega sterkt fyrirtæki með breiðan tekjugrunn sem mun geta boðið viðskiptavinum sínum upp á fjölþætta þjónustu á öllum helstu sviðum fjármála- og tryggingaþjónustu. Stjórnir félaganna telja raunhæft að fyrirvarar samrunasamningsins verði uppfylltir og að félögin verði sameinuð á fyrsta ársfjórðungi 2021,“ sagði í tilkynningu frá félögunum þann 25. nóvember. Samkvæmt samrunasamningnum stendur til að skipta fjármála- og rekstrarsviði Kviku upp í tvö svið að loknum samruna þar sem Ragnar Páll Dyer mun gegna starfi framkvæmdastjóra fjármálasviðs og Ólöf Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Lykils, mun hefja störf hjá Kviku og gegna þar starfi framkvæmdastjóra rekstrar- og þróunarsviðs. „Stjórnir félaganna telja raunhæft að með samrunanum megi ná fram 1.200-1.500 m.kr. árlegri kostnaðarsamlegð, án viðskipta- og einskiptiskostnaðar. Við mat á kostnaðarsamlegð hefur verið miðað við áætlanir félaganna fyrir árið 2021,“ sagði ennfremur í tilkynningunni sem var send út í nóvember. Er gert ráð fyrir að stærsti hluti kostnaðarsamlegðar komi til vegna hagkvæmari fjármögnunar og að megnið af áætlaðri samlegð náist á árinu 2022. Fréttin hefur verið uppfærð.
Markaðir Tryggingar Íslenskir bankar Samkeppnismál Tengdar fréttir Kvika og TM hefja sameiningarviðræður Stjórnir Kviku Banka og TM hafa samþykkt að hefja formlegar viðræður um sameiningu félaganna. 28. september 2020 23:10 Langþráð kaup TM á Lykli orðin að veruleika Tryggingamiðstöðin hefur fest kaup á Lykli fjármögnun. 10. október 2019 12:04 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Viðskipti innlent Snýr aftur til Snjallgagna Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður hjá OK Viðskipti innlent „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Viðskipti innlent Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Viðskipti innlent Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Fleiri fréttir Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Ráðin forstöðumaður hjá OK Snýr aftur til Snjallgagna Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Sjá meira
Kvika og TM hefja sameiningarviðræður Stjórnir Kviku Banka og TM hafa samþykkt að hefja formlegar viðræður um sameiningu félaganna. 28. september 2020 23:10
Langþráð kaup TM á Lykli orðin að veruleika Tryggingamiðstöðin hefur fest kaup á Lykli fjármögnun. 10. október 2019 12:04