Þór til taks á Austfjörðum

Varðskipið Þór verður til taks vegna veðurviðvaranna á Austfjörðum í …
Varðskipið Þór verður til taks vegna veðurviðvaranna á Austfjörðum í kvöld og á morgun. Mynd úr safni. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Varðskipið Þór tek­ur sér stöðu á Seyðis­firði vegna veðurviðvar­ana á Aust­fjörðum. 

„Við miðum oft við það að stilla varðskip­un­um okk­ar á þeim stöðum þar sem hætta er á að veðrið sé sem verst og í því ljósi ætl­um við að vera með varðskipið Þór inni á Seyðis­firði til taks,“ seg­ir Ásgeir Er­lends­son, sam­skipta­stjóri Land­helg­is­gæsl­unn­ar, í sam­tali við mbl.is.

Var þegar fyr­ir aust­an

Al­manna­varn­ir rík­is­lög­reglu­stjóra lýstu yfir óvissu­stigi í dag og tek­ur hættu­stig við eft­ir klukk­an 18. Ástæða viðbúnaðar­ins er úr­hell­is­rign­ing sem mun fær­ast í auk­ana á miðnætti í nótt en hætta er á auknu af­rennsli og vatna­vöxt­um í ám og lækj­um ásamt flóðum og skriðuföll­um.

Ásgeir seg­ir gott sam­tal ávalt ríkja á milli al­manna­varna­deild­ar rík­is­lög­reglu­stjóra og því sé Gæsl­an boðin og búin til að vera til taks ef þörf sé á aðstoð þeirra. Svo heppi­lega vilji til að skipið hafi ein­mitt verið fyr­ir aust­an og því verði skipið komið á Seyðis­fjörð inn­an skamms. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert