Laufey lofuð í Rolling Stone Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 1. maí 2021 10:36 Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir. Facebook/Laufeymusic Fjallað er um fyrstu EP-plötuna sem tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir sendi frá sér á dögunum í bandaríska stórtímaritinu Rolling Stone. Fram kemur í umfjöllun Rolling Stone að mörg laganna á plötu Laufeyjar hafi hún samið á heimavistinni í Berklee-tónlistarskólanum í Boston, þar sem Laufey stundaði nám.
Laufey er 22 ára gömul og hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir tónlist sína. Hún bæði semur, syngur og leikur á selló en meðal þess sem er að finna á nýju plötunni er ábreiða af laginu I Wish You Love sem upphaflega var samið Charles Trenet og var tekið upp nokkrum sinnum í Frakklandi á fimmta áratugnum, áður en Albert Beach gerði enska útgáfu af laginu. Saga lagsins er rakin nánar í umfjöllun Rolling Stone en meðal þeirra sem hafa flutt sína eigin útgáfu af laginu eru Dean Martin, Chet Baker og Frank Sinatra svo örfá dæmi séu tekin. Ekki er annað hægt að segja en að flutningur Laufeyjar á laginu fái góða dóma hjá Rolling Stone. Flutningur Laufeyjar er sagður bæði ljúfur og lipur auk þess sem hún bæti við skemmtilegum klappandi aukatakti sem lyfti laginu enn frekar upp. Laufey hefur verið dugleg að notast við samfélagsmiðla til að miðla tónlist sinni eins og hún lýsir sjálf í samtali við From The Intercom nýverið. „Þetta er það sem er í uppáhaldi hjá mér varðandi samfélagsmiðla: Um leið og ég sem lag, og hugsa um útfærslu af þekktu djasslagi, þá deili ég því á TikTok, Instagram eða YouTube, og viðbrögðin sem ég fæ við því – þau segja mér hvort ég ætti að halda áfram með það og gera stúdíó-útgáfu og gefa það út,“ sagði Laufey. Útgáfu Laufeyjar á laginu I Wish You Love má heyra í spilaranum hér að neðan.
Tónlist Íslendingar erlendis Laufey Lín Mest lesið Hataði á sér brjóstin og vildi skera þau af Lífið Best klæddu stjörnurnar á Met Gala Tíska og hönnun Ísland geti orðið fyrsta reyklausa landið í heimi Lífið Laufey skein skært á Met Gala Tíska og hönnun Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Lífið Óli Palli ætlar að horfa á Stöð 2 í kvöld Lífið Hvaða jólasveinn verður næsti forseti? Lífið Tókst ekki að selja í öll auglýsingaplássin á RÚV í kvöld Lífið Nánast engar líkur taldar á að Hera komist áfram Lífið Smalahundaþjálfun og æsingur í hundum vegna gestagangs Lífið Fleiri fréttir Eurovision-hópurinn afklæðist milli atriða Tókst ekki að selja í öll auglýsingaplássin á RÚV í kvöld Ísland geti orðið fyrsta reyklausa landið í heimi Glösin á loft fyrir nýjum burstahreinsi „Pollróleg“ en full eftirvæntingar fyrir kvöldinu Nánast engar líkur taldar á að Hera komist áfram Óli Palli ætlar að horfa á Stöð 2 í kvöld Salurinn aldrei sungið eins mikið með einu lagi Hvaða jólasveinn verður næsti forseti? Hataði á sér brjóstin og vildi skera þau af Smalahundaþjálfun og æsingur í hundum vegna gestagangs Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Myndaveisla: Svana töfraði fram suðræna veislu fyrir UAK Myndaveisla: Mari og Guðni féllust í faðma á ögurstundu Stærstu stjörnur rappsins bera hvor annan þungum sökum Baulað á Kim Kardashian þegar Brady var grillaður Söngskóli Sigurðar Demetz með Oklahoma í Borgarleikhúsinu Fleiri svartsýnir á gott gengi Heru Sumarlegir réttir að hætti Jönu Emilíana Torrini kemur fram í Hörpu Búa til barnaefni á íslensku á Youtube Er hægt að skjóta í gegnum byssukúlu? Blóm og plöntur sem þola kuldann Neyslan var orðinn algjör þrældómur Stjörnulífið: Líf og fjör og ástin blómstar Martröð að fara á útikamar í svartamyrkrinu í Eistlandi sem barn Bítið í beinni „Ég verð að komast til Japan“ „Við erum öll byrjendur á einhverjum tímapunkti“ Sonurinn skírður Sjá meira