Liverpool áfram með fullt hús - fyrsti sigur Milan

Mo Salah skorar annað mark Liverpool.
Mo Salah skorar annað mark Liverpool. AFP

Liverpool er áfram með fullt hús stiga í B-riðli í Meistaradeild Evrópu í fótbolta eftir 2:0-heimasigur á Porto í 5. umferðinni í kvöld. 

Eftir markalausan fyrri hálfleik, þar sem Sadio Mané skoraði mark sem var dæmt af vegna rangstöðu, skoraði Thiago fyrsta mark leiksins á 52. mínútu með þrumufleyg af löngu færi. 

Eftir markið hélt Liverpool áfram að sækja og Mo Salah bætti við marki á 70. mínútu með skoti úr teignum eftir sendingu frá Jordan Henderson og þar við sat. 

Liverpool er með 15 stig á toppnum, tíu stigum á undan Porto. AC Milan og Atlético Madrid eru bæði með fjögur stig eftir að Milan vann 1:0-útisigur í Maadríd. Junior Messias skoraði sigurmarkið á 87. mínútu. 

Liverpool 2:0 Porto opna loka
90. mín. James Milner (Liverpool) á skot sem er varið Fast skot af löngu færi en Costa er með þetta á hreinu og ver.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert