102 innanlandssmit

mbl.is/Auðun

102 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, þar af voru 62 í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram á covid.is þar sem enn fremur kemur fram að alls hafi 110 smit greinst í gær, þar af átta á landamærunum.

24 eru á sjúkrahúsi, þar af þrír á gjörgæslu.

Tek­in voru 2.760 sýni, þar af 1.182 ein­kenna­sýni. 1.684 eru nú í ein­angr­un vegna Covid-19 og 2.380 í sótt­kví.


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert