Son myndi fórna markakóngstitlinum fyrir Meistaradeildarsæti Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 14. maí 2022 12:46 Heung-Min Son fagnar marki sínu gegn Arsenal. Chris Brunskill/Fantasista/Getty Images Heung-Min Son er í harðri baráttu við Liverpool-manninn Mohamed Salah um markakóngstitilinn í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Kóreumaðurinn segist hins vegar vera tilbúinn að fórna titlinum ef það þýðir að Tottenham vinnur sér inn sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili.
Son hefur verið iðinn við markaskorun þetta tímabilið og hefur séð til þess að markverðir deildarinnar hafa þurft að sækja boltann í netið í 21 skipti. Hann er einu marki á eftir efsta manni listans, Mohamed Salah, sem hefur skorað 22 mörk þegar tvær umferðir eru eftir af tímabilinu, Það er þó önnur barátta sem Kóreumaðurinn telur mun mikilvægari, en það er baráttan um Meistaradeildarsæti. Son og félagar hans í Tottenham sitja í fimmta sæti deildarinnar, aðeins einu stigi á eftir erkifjendum þeirra í Arsenal sem sitja í fjórða og seinasta Meistaradeildarsætinu. „Það væri frábært að verða markakóngur, en fyrir okkur sem lið er mikilvægt að lenda í einu af efstu fjórum sætunum,“ sagði Son. Kóreumaðurinn skoraði mark númer 21 á tímabilinu í öruggum 3-0 sigri Tottenham gegn erkifjendunum í Arsenal síðastliðinn Fimmtudag. Hann hefur nú skorað tíu mörk í seinustu átta leikjum, en aðspurður að því hvort hann myndi fórna einhverjum af þessum mörkum fyrir sæti í Meistaradeildinni stóð ekki á svörum. „Já, hundrað prósent. Auðvitað er gott að maður sé að keppa að því að verða markakóngur, en ég hef sagt það áður að það að enda í topp fjórum er það mikilvægasta af öllu fyrir okkur,“ sagði Kóreumaðurinn að lokum. Son Heung-min has admitted he'd sacrifice the Premier League Golden Boot to play in the #UCL with Tottenham. - Express pic.twitter.com/9wwvz4Hkoy— The Spurs Web (@thespursweb) May 13, 2022
Enski boltinn Mest lesið Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Körfubolti McIlroy sækir um skilnað nokkrum dögum fyrir PGA-meistaramótið Golf Jói Kalli hættir hjá landsliðinu og fer til Danmerkur Fótbolti Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Íslenski boltinn Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Íslenski boltinn Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Körfubolti Skaut á Taylor Swift og sagði konum að halda sig í eldhúsinu Sport United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Enski boltinn Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna Enski boltinn Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur Körfubolti Fleiri fréttir Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Emirates verður aðalheimavöllur Arsenal á næstu leiktíð Guardiola: Arsenal verður meistari ef við vinnum ekki Tottenham Var með 0,99 í xG en skoraði samt ekki Varane kveður United eftir tímabilið Fernandes íhugar að stökkva frá borði Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Liverpool henti frá sér sigrinum í síðasta útileik Klopp Kröfðu Bayern um 100 milljónir fyrir þjálfarann Sú markahæsta í sögu ensku deildarinnar yfirgefur Arsenal og fer væntanlega til City Foss á Old Trafford leikvanginum í gær Saka Casemiro um leti: „Hreyfðu fæturna á þér“ Líkir Havertz við Liverpool-hetju Segir að staðan hjá United sé miklu verri en hún var hjá Moyes Havertz: „Verð mesti stuðningsmaður Tottenham í sögunni“ Rooney sakar meidda leikmenn United um að vilja ekki spila „Höfum ekki haft neitt svigrúm til að gera mistök“ Fyrsti stóri titill United-kvenna Enn ekkert skorað í umspilinu Trossard skaut Arsenal á toppinn Leeds í fínum málum eftir fyrri leikinn Arteta hælir Ten Hag og vonast til að hann haldi áfram Örlög Luton ráðin og allir nýliðarnir falla Sjá meira