Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11 í dag.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fer yfir stöðu mála varðandi framgang Covid-19-faraldursins hér á landi ásamt Ölmu Möller landlækni og Rögnvaldi Ólafssyni aðstoðaryfirlögregluþjóni.
Vegna sóttvarnareglna sem nú eru í gildi er fjölmiðlafólki boðið að fylgjast með upplýsingafundinum á fjarfundi.